Viðskipti innlent

Áfrýjun á leiðinni til ríkissaksóknara

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fv: Birkir Kristinsson, Magnús Arnar Arngrímsson, Jóhannes Baldursson og Elmar Svavarsson.
Fv: Birkir Kristinsson, Magnús Arnar Arngrímsson, Jóhannes Baldursson og Elmar Svavarsson.
Lögmaður Birkis Kristinssonar segir að skjólstæðingur sinn hafi ekki átt von á öðru en að málinu yrði vísað frá eða hann yrði sýknaður. Birkir var einn þriggja sem dæmdur var í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga í tengslum við 3,8 milljarða lánveitingu Glitnis til félagsins BK-44 í nóvember 2007. Félagið var í eigu Birkis.

Auk Birkis, sem gegndi stöðu viðskiptastjóra hjá einkabankaþjónustu Glitnis, voru Elmar Svavarsson, verðbréfamiðlari, og Jóhannes Baldursson, framkvæmdastjóri markaðsviðskipta, dæmdir í fimm ára fangelsi. Magnús Arnar Arngrímsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi.

„Dómurinn kom verulega á óvart. Birkir hélt að málinu yrði annaðhvort vísað frá eða hann sýknaður,“ segir Ólafur Eiríksson, lögmaður Birkis, í samtali við Vísi. Ólafur hafði nýlokið við að lesa forsendur og niðurstöður dómsins er fréttamaður náði tali af honum. Framhaldið er ljóst af þeirra hálfu.

„Áfrýjun er á leiðinni inn til ríkissaksóknara,“ segir Ólafur. Annað sé ekki hægt að hans sögn. Ólafur segir Birki telja að niðurstaðan í dag sé byggð á röngum staðreyndum.

Ekki í samræmi við málsmeðferð í héraði

„Dómurinn kom mér algjörlega í opna skjöldu,“ segir Helgi Birgisson, lögmaður Magnúsar Arnars. Hann segir allir líkur á því að dómnum verði áfrýjað.

„Miðað við aðkomu míns manns að þessu máli átti maður ekki von á öðru en hann yrði sýknaður,“ segir Helgi. Magnús Arnar eigi einn tölvupóst í gögnum sérstaks saksóknara sem telji um þrjú þúsund blaðsíður.

„Niðurstaðan kom mér mjög á óvart og er ekki í samræmi við það sem fram kom við málsmeðferð í héraði.“

Reimar Pétursson, lögmaður Jóhannesar, staðfesti við fréttasofu að dómi Jóhannesar yrði áfrýjað til Hæstaréttar. Það gerði Karl Georg Björnsson, lögmaður Elmars einnig.

„Ég myndi ráðleggja verðbréfamiðlara að leita sér að öðru starfi,“ sagði Karl Georg í viðtali við Vísi sem lesa má hér.

Dóminn í heild sinni má lesa hér.


Tengdar fréttir

Fjórir ákærðir fyrir lán til Birkis Kristinssonar

Sérstakur saksóknari hefur ákært Birki Kristinsson og þrjá aðra fyrrverandi starfsmenn Glitnis fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og fleira. Ástæðan er 3,8 milljarða lán til félags í eigu Birkis til kaupa á bréfum í bankanum.

Birkir samdi við slitastjórn Glitnis

Birkir Kristinsson samdi við slitastjórn Glitnis um að endurgreiða tugmilljóna hagnað sinn af hlutabréfaeign í bankanum, sem saksóknari telur ólögmætan. Honum hefur því ekki verið stefnt til greiðslu skaðabóta eins og tveimur öðrum sakborningum.

Kröfu Birkis um frávísun hafnað

Ákæra sérstaks saksóknara á hendur Birki Kristinssyni, í máli kenndu við félag hans, BK-44, stendur óhögguð. Þetta var niðurstaða héraðsdómara í morgun.

Birkir Kristins neitar sök

Er ásamt þremur öðrum fyrrverandi starfsmönnum Glitnis ákærður fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga.

Ákærðu enn við störf hjá Íslandsbanka

Þeir Birkir Kristinsson og Elmar Svavarsson, starfa báðir enn hjá Íslandsbanka, þrátt fyrir að þeir hafi verið ákærðir ásamt tveimur öðrum mönnum, fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga í tengslum við 3,8 milljarða króna lánveitingu Glitnis til félags í eigu Birkis.

Lárus og Guðmundur segjast ekki hafa samþykkt lánið

Birkir Kristinsson tók 3,8 milljarða lán til að kaupa hlutabréf í Glitni, svo að bankinn gæti gert upp framvirkan samning við Gnúp, sem Birkir átti 28% í. Lárus Welding segist ekki hafa komið nálægt lánveitingunni.

Birkir og Elmar sendir í leyfi

Þeir Birkir Kristinsson og Elmar Svavarsson hafa verið settir í leyfi frá störfum sínum í Íslandsbanka samkvæmt heimildum fréttastofu.

Birkir dæmdur í fimm ára fangelsi

Birkir Kristinsson, Jóhannes Baldursson og Elmari Svavarssyni voru dæmdir í fimm ára fangelsi og Magnús Arnar Arngrímsson í fjögurra ára fangelsi.

Dómur fellur í máli Birkis og félaga

Fjórmenningarnir eru ákærðir fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga í tengslum við 3,8 milljarða lánveitingu Glitnis til félags í eigu Birkis Kristinssonar í nóvember 2007.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×