Erlent

Abdeslam ætlaði að sprengja sig í loft upp en hætti við

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá handtöku Abdeslam í gær.
Frá handtöku Abdeslam í gær.
Salah Abdeslam, sem handtekinn var í Brussel í gær, sagði við yfirheyrslu að hann hefði ætlað að sprengja sig í loft upp við Stade de France leikvanginn en hætt við. Saksóknari segir þó að enn sé mörgum spurningum ósvarað. Abdeslam hefur verið ákærður fyrir hryðjuverk.

Lögmaður hans segir Abdeslam sýna lögreglu samstarfstarfsvilja, en hann ætli að berjast gegn því að vera framseldur til Frakklands.

Samkvæmt AFP sagði franski saksóknarinn Francois Molins á blaðamannafundi í dag að Abdeslam hefði skilið aðra árásarmenn eftir við Stade de France í nóvember en síðan hafi hann farið í annað hverfi í borginni sem var skotmark árásarinnar samkvæmt tilkynningu frá Íslamska ríkinu.

Engin árás var þó gerð þar og hafði lögregla leitað að Abdeslam síðan.

Rannsakendur vonast eftir því að Abdeslam muni veita upplýsingar um uppbyggingu hópsins sem stóð að baki árásunum í París, um fjármögnun hópsins og frekari áætlanir.


Tengdar fréttir

Fundu fingraför Abdelsam í Brussel

Salah Abdelsam er talinn hafa tekið þátt í árásunum í París en hann var í íbúð í Brussel sem skotið var á lögregluþjóna úr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×