Innlent

„Ég bara lokaði glugganum og það bjargaði skrifstofunni“

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Skrifstofa Jóns er í Skeifunni 11.
Skrifstofa Jóns er í Skeifunni 11.
„Þetta gat ekki verið betra, eins og hann pabbi minn var vanur að segja,“ segir Jón Magnússon kampakátur yfir því að skrifstofan hans, sem er í Skeifunni 11, slapp algjörlega í brunanum sem var í Skeifunni á sunnudagskvöld.

„Hér eru engar skemmdir á munum, ekki sót, ekki lykt,“ segir Jón. Hann þakkar slökkviliðinu fyrir frábært starf og slökkvimenn hafa unnið þrekvirki. Alla jafna hefði það þó væntanlega ekki dugað til þess að bjarga skrifstofu Jóns frá reykskemmdum, því hann er yfirleitt með opna glugga á skrifstofunni.

En þegar hann fór út af skrifstofunni á föstudag lokaði hann gluggunum í fyrsta skipti í langan tíma.

Jón hlær þegar hann rifjar þetta upp. „Já, yfirleitt vil ég alltaf hafa ferskt loft í kringum mig og byrja yfirleitt alltaf á að opna glugga hvert sem ég kem. Ég skil yfirleitt alltaf opinn glugga á skrifstofunni þegar ég fer frá vinnu. En í þessu tilviki lokaði ég glugganum. Ég veit í raun ekki af hverju ég gerði það og man ekki eftir því. Maður man aldrei eftir svona smáatriðum. Ég bara lokaði glugganum og það bjargaði skrifstofunni.“

Brá í brún þegar hann opnaði dyrnar

Jón fylgdist með eldtungunum teygja sig upp eftir byggingunni sem skrifstofan hans er í. Hann segist ekki hafa gert ráð fyrir að skrifstofan myndi bjargast. „Ég gat ekki séð hvort að glugginn væri opinn eða ekki þegar bruninn átti sér stað. Ég spáði nú reyndar ekkert í því hvort skrifstofan myndi bjargast eða ekki. Enda er langt síðan að ég hætti að tengjast veraldlegum hlutum tilfinningaböndum. En vissulega er ég ánægður að hún hafi bjargast því ég hefði þurft mánuð, hið minnsta, til að koma starfseminni í fyrra horf.“

Jón telur að réttar ákvarðanir slökkviliðsmanna hafi bjargað því sem bjargað varð. „Já, þessi ákvörðun að verja húsin þarna í kring var greinilega rétt og ég held að slökkviliðið hafi unnið þrekverki,“ segir hann að lokum.


Tengdar fréttir

Mikill eldur í Skeifunni

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna mikils elds sem logar í Skeifunni.

Eldurinn kviknaði í Þvottahúsi Fannar

"Það var unnið í þvottahúsinu í dag en enginn var við störf þegar eldurinn kom upp. Þar er náttúrulega mikill eldsmatur, þar sem við erum að þvo lín fyrir hótel og öldrunarheimili," segir Þorvarður Helgason, verkstjóri hjá Fönn.

„Við munum rísa úr öskunni fljótt“

Ingþór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Pennans, sem á og rekur verslunina Griffil, gengur út frá því að allt sé farið sem þar sé innandyra.

Fönn þakkar slökkviliðsmönnum

Þvottahúsið Fönn er nú þegar byrjað að þjónusta viðskiptavini sína þrátt fyrir áfallið sem fyrirtækið varð fyrir í brunanum í Skeifunni síðastliðinn sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×