Handbolti

Voru Þjóðverjar öryggir með sæti á HM fyrir umspilið?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þjóðverjar eftir tapið í júní.
Þjóðverjar eftir tapið í júní. Vísir/Getty
Þýskaland var fyrsta landsliðið sem fékk "gefins" sæti á HM í handbolta í Katar en síðan hafa Ísland og Sádí-Arabía einnig komist bakdyramegin inn á Heimsmeistaramótið sem fer fram í janúar næstkomandi.

Nýjustu fréttir frá Þýskalandi eru hinsvegar þær að Alþjóðahandboltasambandið hafi lofað Þjóðverjum sæti á HM í Katar sama hvernig færi í umspilsleikjunum á móti Póllandi.

Þetta kom fram í fréttaskýringu um málið í Sportschau-þættinum á ARD sem er vinsælasti og elsti fréttaskýringaþáttur í þýsku sjónvarpi.

Sjá einnig:Ungverjar og Svíar mjög ósáttir með að Ísland fékk HM-sætið

Henrik Deichmann fjallaði um málið og vann alla rannsóknavinnu fyrir þáttinn en hann var einnig staddur á fundi Framkvæmdastjórnar IHF í Herzogenaurach í Þýskalandi í gær.

Í þættinum var meðal annars viðtal við Þjóðverjann Michael Biegler sem þjálfar pólska landsliðið sem sló Þjóðverjana út úr umspilinu.  

„Það var óheppilegt að þurfa að segja mínu liði frá því fyrir þessa leiki að við yrðum að vinna til að komast á HM en Þjóðverjar hefði aðrar leiðir opnar fyrir sig. Það varð augljósara og augljósara að Þjóðverjar yrðu teknir inn bakdyramegin til Katar. Það hefði aldrei gerst fyrir Pólland," sagði Michael Biegler.

Bevan Calvert, fyrirliði Ástrala sem misstu HM-sætið til Þjóðverja, sagði frá því í þættinum að ástralska sambandið hafi fengið símtal í apríl um að þeir yrðu líklega ekki að með á HM.

Ástralía vann sér sæti á HM eftir undankeppnina í Eyjaálfu en IHF tók síðan af þeim sætið í júlí og hleypti Þýskalandi inn í staðinn.


Tengdar fréttir

Guðjón Valur: Það skiptir engu máli hvernig við komust á HM

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson er gríðarlega ánægður með fréttirnar um að íslenska handboltalandsliðið verði með á HM í Katar í janúar. Framkvæmdastjórn Alþjóðahandboltasambandsins hleypti Íslandi inn bakdyramegin á mótið í kvöld.

Ísland verður með á HM í Katar | Ísland og Sádí-Arabía fá lausu sætin

Íslenska handboltalandsliðið verður með á HM í handbolta í Katar í janúar eftir allt saman en þessi óvænta ákvörðun var tekin á fundi Framkvæmdastjórnar IHF í Þýskalandi í dag samkvæmt óstaðfestum heimildum íþróttadeildar 365 . Íslenska landsliðið fær sæti í C-riðli með Svíum og Frökkum.

Guðmundur B. Ólafsson: Ég þarf ekki að tala Aron Pálmarsson til

Aron Pálmarsson verður með íslenska landsliðinu á HM í handbolta í Katar þrátt fyrir ummæli í vikunni um að hann nennti ekki að koma inn á HM sem einhver varaþjóð. Formaður HSÍ hefur engar áhyggjur af því að Aron verði ekki klár í verkefnið en Ísland fékk í dag sæti á HM í Katar í janúar.

Þetta lýsir vonandi upp myrkrið fyrir íslensku þjóðina

Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, var ánægður með fréttir gærkvöldsins þegar Ísland fékk sæti á HM í Katar ásamt Sádí-Arabíu en þetta var niðurstaða fundar Framkvæmdastjórnar IHF. "Við gleðjumst svo sannarlega yfir þessu og teljum þetta vera mikið og stórt skref fyrir hreyfinguna,“ sagði Guðmundur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×