Menning

Vortónleikar með fjölþjóðlegu sniði hjá Kvennakór Háskólans

Magnús Guðmundsson skrifar
Kvennakór Háskóla Íslands syngur inn vorið á sunnudaginn.
Kvennakór Háskóla Íslands syngur inn vorið á sunnudaginn.
Vortónleikar Kvennakórs Háskóla Íslands verða haldnir í Hátíðarsal Háskólans á sunnudaginn undir yfirskriftinni Hraðferð um heiminn, sonnettur og sumarlög.

Á efnisskrá eru m.a. íslensk sumarlög, þjóðlög frá Japan og Rússlandi sungin á frummáli, og frumflutningur á fjórum ljóðasöngvum eftir Þorvald Gylfason og Kristján Hreinsson. Sönglögin eru hluti af lagaflokki sem þeir félagar gáfu kvennakórnum í tilefni 10 ára afmælis kórsins á síðasta ári en starfsemin hefur verið með einkar blómlegum hætti. á þessum tíu skemmtilegu árum.

Kórinn skipa um þrjátíu stúlkur, úr röðum nemenda og starfsfólks HÍ. Tónleikarnir eru með sérstaklega fjölþjóðlegu sniði þar sem í ár syngja með kórnum stúlkur frá Japan, Rússlandi, Makedóníu, Þýskalandi, Tékklandi, Danmörku og Bandaríkjunum.

Stjórnandi er Margrét Bóasdóttir og píanóleikari Guðrún Dalía Salómonsdóttir.

Aðgangseyrir er 2.000 kr. en ókeypis fyrir nemendur Háskóla Íslands. Rjúkandi kaffi og ilmandi heimabakað meðlæti er innifalið í aðgangseyri.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 30. apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×