Menning

Vill miðla persónulegum tilfinningum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jónas Sen og Sigga Soffía vinna aftur saman.
Jónas Sen og Sigga Soffía vinna aftur saman. vísir
Síðastliðin ár hefur danshöfundurinn Sigga Soffía fært Íslendingum stór verk á borð við flugeldasýningar á Menningarnótt og opnunarsviðsverk Listahátíðar Reykjavíkur, Svartar Fjaðrir, sem var á dagskrá í Þjóðleikhúsinu.

Verkin hennar hafa ekki farið framhjá mörgum og hefur Sigga Soffía verið áberandi í íslensku menningarlífi undanfarin misseri.

Í ár er komið að verkinu FUBAR sem listamaðurinn skapaði til að miðla persónulegum tilfinningum og upplifun í sólódansverki sem í Gamla Bíói.

Sýningin samanstendur af hreyfiefni, söng og texta eftir Siggu Soffíu ásamt lifandi tónlist eftir Jónas Sen. Sigga Soffía og Jónas hafa áður innið saman og meðal annars í verkinu Svartar Fjaðrir.

Sex sýningar verða í boði og verður ein þeirra í Iceland Airwaves hátíðinni 2. nóvember. Eftir hverja sýningu verður boðið upp á listamannaspjall frá aðilum úr mismunandi list tengdum greinum ásamt lifandi tónlist.

27. október - Kristína Aðalsteinsdóttir, myndlistamaður/safnafræðingur & verkefnastjóri KÍM og Berg Contemporary.

30. október - Bryndis Bjorgvinsdottir, rithöfundur, sagnfræðingur og þjóðfræðingur.

9. nóvember - Barði Jóhannsson, tónlistarmaður

13. nóvember - Saga Garðarsdóttir, leikkona og uppistandari.

20. nóvember - Stefán Jónsson, leikari, leikstjóri og prófessor við Listaháskóla Íslands.

FUBAR from Ratel on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×