Viðskipti innlent

Vilja taka skýrslur af dómurum í Aurum-málinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Hæstiréttur ómerki dóm héraðsdóms vegna meints vanhæfis sérhæfðs meðdómanda í málinu.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Hæstiréttur ómerki dóm héraðsdóms vegna meints vanhæfis sérhæfðs meðdómanda í málinu. Vísir/GVA
Fyrirtaka fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna kröfu verjenda í Aurum-málinu svokallaða. Farið er fram á að tekin verði skýrsla af tveimur dómurum sem dæmdu í málinu, þeim Guðjóni St. Marteinssyni, héraðsdómara, og Sverri Ólafssyni, sérfróðum meðdómanda, áður en málið fer fyrir Hæstarétt. Tengist skýrslutakan ómerkingarkröfu ríkissaksóknara.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Hæstiréttur ómerki dóm héraðsdóms vegna meints vanhæfis Sverris í málinu. Hann er bróðir Ólafs Ólafssonar sem dæmdur var í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Al Thani-málinu.

Ómerki dóminn vegna ættartengsla og ummæla Sverris

Sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, hafði ekki upplýsingar um ætterni Sverris fyrr en eftir að aðalmeðferð í Aurum-málinu lauk. Sagði Ólafur við fjölmiðla í kjölfar dómsins að hann hefði mótmælt skipun Sverris sem sérhæfðs meðdómanda ef hann hefði vitað að hann væri bróðir Ólafs Ólafssonar.

Sjá einnig: Saksóknari vissi ekki af ættartengslum dómara í Aurum-máli

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Hæstiréttur ómerki dóm héraðsdóms vegna ættartengsla Sverris sem og vegna ummæla sem hann lét falla í fjölmiðlum eftir að dómur var kveðinn upp. Hann sagðist í samtali við fréttastofu RÚV ekki trúa því að sérstakur saksóknari hafi ekki vitað af ættartengslunum:

Svo var haft eftir Sverri: „Mér finnst viðbrögð hans hæpin og mér finnst þetta bera vott um örvæntingarfullar og jafnvel óheiðarlegar aðgerðir og hann grípur til þeirra á erfiðum tímum þegar trúverðugleiki hans stofnunar er eiginlega í molum.“

Samkvæmt heimildum Vísis vilja verjendurnir meðal annars varpa ljósi á þessi ummæli Sverris og hvers vegna þau féllu, en þeir telja ummælin ekki gera Sverri vanhæfan. Því er ákæruvaldið ósammála og telur að Sverrir hafi með þessum orðum sýnt að ekki væri hægt að treysta því að hann væri hlutlaus í málinu.

Sverrir og Guðjón sýknuðu sakborninga í Aurum-málinu af ákæru sérstaks saksóknara. Arngrímur Ísberg skilaði sératkvæði í málinu. Hann taldi sannað að umboðssvik hefðu átt sér stað og vildi sakfella Lárus Welding og Magnús Arnar Ásgrímsson. Þá vildi hann sakfella Jón Ásgeir Jóhannesson fyrir hlutdeild í brotum Lárusar og Magnúsar.


Tengdar fréttir

Allir sýknaðir í Aurum-málinu

Dómsuppsaga í Aurum-málinu var í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur en allir ákærðu voru sýknaðir. Ríkið þarf að greiða verjendunum samtals um 45 milljónir í lögmannskostnað vegna málsins.

Mat sérstaks saksóknara rangt – dómarnir áfall

„Það á ekki að gefa út ákæru í máli nema saksóknari, eða sá sem gefur út ákæruna, telji að það sem fram sé komið sé nægjanlegt og líklegt til sakfellis,“ segir Kristín Edwald, hæstaréttarlögmaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×