Golf

Vildi vera í sandölum og var rekinn heim af Masters

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Lorne Duncan hjálpar Matthew Fitzpatrick ekkert um helgina.
Lorne Duncan hjálpar Matthew Fitzpatrick ekkert um helgina. Vísir/Getty
Reglurnar eru strangar í kringum Masters-mótið í golfi sem hefst á Augusta-vellinum í dag en það er jafnframt fyrsta risamót ársins.

Matthew Fitzpatrick og kylfusveinn hans, LorneDuncan, fengu að kynnast þessu í gær þegar Duncan var sendur heim og meinuð frekari þátttaka á mótinu þar sem hann vildi ganga um völlinn í sandölum.

Duncan var ekki að reyna vera með vandræði heldur getur hann ekki gengið um í skóm vegna fótsjúkdóms. Það kom aftur á móti ekki til greina af hálfu forráðamanna Masters-mótsins að leyfa honum að bera pokann fyrir Fitzpatrick í sandölum.

„Fagurfræði skiptir greinilega meira máli en manneskjur. Ég sagði mótstjóranum að hann væri ömurlegur. Ég hata þennan stað,“ skrifaði Duncan reiður á Twitter-síðu sína.

Fitzpatrick, sem er enn fremsti áhugamaður heims, fær nýjan mann á pokann en það verður Norður-Írinn Ricky Elliot sem aðstoðar hann um helgina. Elliot er vanalega kylfusveinn Bandaríkjamannsins BrooksKoepka.

„Þetta truflar mig ekkert. Ég er mjög ánægður með að vera hér og hlakka til að vera með reyndan kylfusvein með mér um helgina,“ sagði Matthew Fitzpatrick sem vildi lítið gera úr málinu.


Tengdar fréttir

Scott bauð upp á steik og humar

Hefð er fyrir því að sigurvegari síðasta árs í Masters mótinu velji matseðilinn á kvöldverði meistaranna sem fram fór í gær í klúbbhúsinu á Augusta National.

McIlroy: Lærði mikið af klúðrinu 2011

Rory McIlroy fór illa að ráði sínu á lokadegi Masters-mótsins 2011 en hrunið þar gerði hann sterkari og skilaði honum tveimur risatitlum.

Adam Scott ætlar ekki úr græna jakkanum

Ástralinn vonast til að verða fjórði maðurinn í sögunni sem vinnur Masters-mótið tvö ár í röð en það hafa aðeins þrír af bestu kylfingum sögunnar afrekað.

Moore sigraði í par-3 keppninni

Bandaríski kylfingurinn Ryan Moore stóð uppi sem sigurvegari í par-3 mótinu sem fram fór í dag á Augusta National.

Birgir Leifur heldur með Evrópumönnum á Masters

"Þetta er örugglega vinsælasta mótið af þeim fjórum stóru í áhorfi. Það er alltaf spilað á sama vellinum og mikil hefð hefur myndast í kringum mótið,“ segir Birgir Leifur Hafþórsson, fremsti kylfingur þjóðarinnar, um Masters-mótið, fyrsta risamót ársins, sem hefst á Augusta-vellinum í Georgíuríku í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×