Viðskipti erlent

Versta ársbyrjun banka frá kreppunni 2008

Sæunn Gísladóttir skrifar
Hagnaður Morgan Stanley dróst saman um 54 prósent á tímabilinu.
Hagnaður Morgan Stanley dróst saman um 54 prósent á tímabilinu. Vísir/Getty
Stærstu fjárfestingarbankar Bandaríkjanna áttu gríðarlega erfiðan fyrsta ársfjórðung og dróst hagnaður þeirra á tímabilinu saman um allt að 60 prósent, tekjur drógust saman um allt að tuttugu prósent. Skoski hagfræðingurinn John Kay segir eina birtingarmynd þróunar fjármálakerfisins síðustu áratugi hve mikill óstöðugleiki ríki á fjármálamarkaði.

Fyrsta mánuð ársins hrundu hlutabréf í kauphöllum Kína og bárust smitáhrif þess auk lækkandi olíuverðs til Bandaríkjanna. Hlutabréf í helstu fjárfestingarbönkum Bandaríkjanna lækkuðu all verulega á tímabilinu, eða um milli fimmtán og tæplega þrjátíu prósent. Nú sýna tilkynningar að bandarískir bankar áttu verulega þungan fyrsta ársfjórðung.

Hagnaður Citigroup dróst saman um 27 prósent, tekjur drógust saman um ellefu prósent og námu 17,6 milljörðum dollara, jafnvirði 2.200 milljarða íslenskra króna. Tekjur Bank of America drógust einnig saman og námu 2,7 milljörðum dollara, jafnvirði 336 milljarða íslenskra króna, á sama tíma námu heildartekjur Wells Fargo 5,5 milljörðum dollara, 685 milljörðum króna.

Hagnaður JP Morgan Chase & Co dróst saman um 6,7 prósent. Þetta er í fyrsta sinn sem það gerist yfir fimm ársfjórðunga tímabil.

Hagnaður fjárfestingarbankans Goldman Sachs dróst verulega saman á ársfjórðungnum, fjórða ársfjórðunginn í röð. Hagnaður dróst saman um 60 prósent og tekjur fyrirtækisins drógust saman um 40,3 prósent á tímabilinu. Tekjur námu 6,34 milljörðum dollara, jafnvirði 785 milljarða íslenskra króna. Þær hafa ekki verið lægri síðan árið 2011.

Eitt mesta höggið var hjá Morgan Stanley. Hagnaður bankans dróst saman um 54 prósent. Tekjur féllu um 21 prósent og námu 7,8 milljörðum dollara, 967 milljörðum króna, á tímabilinu.

Af öllum bandarísku fjárfestingarbönkunum er talið að Morgan Stanley hafi hlotið mesta höggið þar sem hann er ekki með stóra viðskiptabankastarfsemi til að mýkja höggið í fjárfestingarbankastarfsemi.

Greiningaraðilar segja að þetta hafi verið versta byrjun árs síðan í fjármálakreppunni 2007 til 2008 og óttast nú að niðurstaða fyrsta ársfjórðungs bendi til þess að árið allt verði lélegt fyrir fjárfestingarbanka. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×