Menning

Útsaumsmynstrin blómstra

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Ég tek útsauminn yfir á annað stig,“ segir hún.
„Ég tek útsauminn yfir á annað stig,“ segir hún. Mynd/úr einkasafni
sdf
„Ég tek útsauminn yfir á annað stig,“ segir Akureyringurinn Guðbjörg Ringsted glaðlega þegar forvitnast er um verk hennar á sýningunni í menningarhúsinu Bergi á Dalvík.

Hún segir þema málverkanna vera útsaumsmynstur af íslenska kvenþjóðbúningnum sem öðlist sitt eigið líf í hennar meðförum. Þau standi ýmist kyrrlát eða flögri um á myndfletinum.

„Þetta er leið til að slíta sig úr viðjum vanans,“ segir hún sposk.

Guðbjörg notar akrýlliti í verkin sín. Hún kveðst í upphafi hafa mundað blýantinn þegar hún fór að forma lauf og blóm en langt sé síðan penslarnir og litirnir tóku yfir.

Þetta er 30. einkasýning Guðbjargar en sú fyrsta var í heimabænum Akureyri fyrir þrjátíu og einu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×