Menning

Uppfærður leikhúsvefur

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Gunnar Andri Þórisson er eigandi vefsins leikhús.is.
Gunnar Andri Þórisson er eigandi vefsins leikhús.is.
Vefsíðan leikhus.is er nú komin með nýjan og endurbættan vef en þar er hægt að finna allt um leikhús á Íslandi á einum stað.

Á vefnum er hægt að nálgast upplýsingar um allar leiksýningar á landinu, bæði áhuga- og atvinnuleikhússýningar.

Í tilkynningu frá síðunni, sem stofnuð var af Gunnari Andra Þórissyni frá Söluskóla Gunnars Andra, segir að á næsta ári verði síðan vettvangur lifandi skoðanaskipta um leikhús og leikhúsmál, þar sem hægt verði að lesa umfjallanir, gagnrýni og fleira.

Vefurinn var upprunalega stofnaður til að færa leikhúsið nær almenningi og auka möguleika áhuga- og atvinnuleikhúsa og hópa til að kynna sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×