Umhverfisstofnun rannsakar mengunarslysið á Eskifirði 28. júlí 2010 15:45 Eskifjörður.
Umhverfisstofnun mun óska eftir upplýsingum um hvort rétt hafi verið staðið að málum í tengslum við mengunarslysið á Eskifirði þegar löndunarvatn úr togara blandaðist neysluvatni bæjarbúa fyrr í mánuðinum. Íbúar Eskifjarðar fengu ekki tilkynningu um atvikið fyrr en tæpri viku eftir að það átti sér stað. Þá hafði blóðvatnið úr togaranum verið blandað neysluvatni bæjarbúa og hafa misvísandi fréttir borist af áhrifum þess. Vísir hefur haft eftir bæjarbúum að fjöldi manns hafi þjáðst af niðurgangi og magakveisu. Andrés Elísson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Fjarðarbyggð sagði að ástandið hefði verið slæmt og rautt vatn hafi runnið úr krönum. Hann sagði ábyrgðina liggja hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands og fór fram á að menn yrðu dregnir til ábyrgðar. DV hefur svo eftir Haraldi Briem sóttvarnarlækni í dag að ekki rétt hafi verið staðið að málum. „Um þessa atburðarás vil ég segja að boðskipti hafi gengið of stirðlega fyrir sig og ekki í samræmi við verklagsreglur sem reynt hefur verið að setja. Það er auðvitað engin afsökun að um sumarleyfistíma er að ræða og mikið um mannaskipti. Það er einboðið að fara þurfi yfir þetta mál og reyna að færa til betri vegar," sagði Haraldur Briem í viðtali við DV. Kristinn Már Ársælsson, upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar, segir að stofnunin muni kalla eftir upplýsingum um málið og það verði skoðað. Málið er ekki á borði heilbrigðisráðuneytisins þar sem það fellur undir mengunarvarnarlög sem heyra undir Umhverfisráðuneytið.
Tengdar fréttir Íbúar á Eskifirði með í maganum eftir mengunarslys Íbúi á Eskifirði hafði samband við fréttastofu og sagði að margir hefðu orðið veikir á Eskifirði eftir að kólígerlar fundust í neysluvatni bæjarins í byrjun þessa mánaðar. 15. júlí 2010 15:54 Mengunarslys í Eskifirði: Ekki of seint brugðist við Bæjaryfirvöld í Fjarðarbyggð segja ekki hafa verið brugðist of seint við mengunarslysi sem varð á sunnudaginn fyrir viku þegar löndunarvökvi úr skipi blandaðist drykkjarvatni bæjarbúa. Bréf var sent til bæjarbúa í gær vegna málsins. 10. júlí 2010 17:51 Þurfa að halda áfram að sjóða neysluvatnið Íbúar á Eskifirði þurfa að halda áfram að sjóða neysluvatn fram yfir helgi að því fram kemur á fréttavefnum Austurglugginn. 17. júlí 2010 09:34 Blóðvatn á Eskifirði: Heilbrigðiseftirlitið átti að loka veitunni Andrés Elísson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Fjarðarbyggð gagnrýnir heilbrigðiseftirlitið harðlega eftir að blóðvatn lak í vatnsveitubæjarins í byrjun mánaðarins. Hann segir að eftirlitið hafi gefið grænt ljós á vatnsveituna eftir að hafa bara tekið sýni á einum stað. Nokkrum dögum síðar hafi hundrað til tvö hundrað manns verið með niðurgang og fólk farið á spítala í kjölfarið. 25. júlí 2010 17:58 Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Fleiri fréttir Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sjá meira
Íbúar á Eskifirði með í maganum eftir mengunarslys Íbúi á Eskifirði hafði samband við fréttastofu og sagði að margir hefðu orðið veikir á Eskifirði eftir að kólígerlar fundust í neysluvatni bæjarins í byrjun þessa mánaðar. 15. júlí 2010 15:54
Mengunarslys í Eskifirði: Ekki of seint brugðist við Bæjaryfirvöld í Fjarðarbyggð segja ekki hafa verið brugðist of seint við mengunarslysi sem varð á sunnudaginn fyrir viku þegar löndunarvökvi úr skipi blandaðist drykkjarvatni bæjarbúa. Bréf var sent til bæjarbúa í gær vegna málsins. 10. júlí 2010 17:51
Þurfa að halda áfram að sjóða neysluvatnið Íbúar á Eskifirði þurfa að halda áfram að sjóða neysluvatn fram yfir helgi að því fram kemur á fréttavefnum Austurglugginn. 17. júlí 2010 09:34
Blóðvatn á Eskifirði: Heilbrigðiseftirlitið átti að loka veitunni Andrés Elísson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Fjarðarbyggð gagnrýnir heilbrigðiseftirlitið harðlega eftir að blóðvatn lak í vatnsveitubæjarins í byrjun mánaðarins. Hann segir að eftirlitið hafi gefið grænt ljós á vatnsveituna eftir að hafa bara tekið sýni á einum stað. Nokkrum dögum síðar hafi hundrað til tvö hundrað manns verið með niðurgang og fólk farið á spítala í kjölfarið. 25. júlí 2010 17:58