Menning

Þetta er ekki stimpilklukkustarf

Gunnþóra Gunnardsóttir skrifar
„Ég verð í stöðugu samtali við aðra í stjórn sveitarinnar,“ segir Daníel um nýja starfið.
„Ég verð í stöðugu samtali við aðra í stjórn sveitarinnar,“ segir Daníel um nýja starfið. Vísir/Valli
Daníel Bjarnason tónlistarmaður er að koma upp úr neðanjarðarlest í London þegar í hann næst í síma. Segir um vikustopp að ræða í heimsborginni vegna tónlistar sem hann sé að semja við dansverk fyrir hóp þar.

Það leggst vel í hann að vera orðinn staðarlistamaður Sinfóníunnar á Íslandi.

„Ég hlakka bara til. Þetta rammar inn samstarf mitt við sveitina nú þegar, sem stjórnandi og tónskáld. Nú bætist við að hafa áhrif á verkefnavalið og stýra tónskáldastofu.“ Það síðarnefnda segir hann snúast um að gera meira fyrir ung tónskáld.

Daníel mun meðal annars stjórna umfangsmikilli tónleikauppfærslu óperunnar Peter Grimes eftir Benjamin Britten sem verður frumflutt á Íslandi 22. maí á Listahátíð í Reykjavík og einnig verða með sveitinni í tónleikferð um landið í október.

Sinfónían og Cincinnati Symphony Orchestra hafa pantað nýtt verk af Daníel sem frumflutt verður í Bandaríkjunum í næsta mánuði en hér verður það leikið í nóvember undir stjórn hans.

Spurningu um hvort nýja embættið hefti frama hans á erlendri grund svarar Daníel neitandi.

„Þetta er ekki stimpilklukkustarf heldur verkefnabundið. Ég verð í stöðugu samtali við aðra í stjórn sveitarinnar, kem að fræðslu og einstaka viðburðum, fyrir utan að skrifa tónlist.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×