Viðskipti erlent

Tekjuhæstu Youtube-stjörnur ársins

Samúel Karl Ólason skrifar
PewDiePie, Roman Atwood og Lilly Singh.
PewDiePie, Roman Atwood og Lilly Singh. Vísir/GETTY
Tekjuhæstu stjörnur Youtube þénuðu samanlaggt um 67, 5 milljónir dala á árinu sem nú er að líða. Það samsvarar um sjö og hálfum milljarði króna. Þetta kemur fram á vef Forbes sem fer nú yfir tekjumöguleikana á Youtube annað árið í röð.

Bæði árin hefur Svíinn Felix Kjellberg eða PewDiePie verið efstur á listanum. Tekjur hans jukust þó verulega á milli ára. Í fyrra þénaði hann 12 milljónir dala, en í ár voru milljónirnar 15. Tæplega 50 milljónir manna er áskrifendur að efni Kjellberg sem er 26 ára gamall.

Á listanum má finna rappara, prakkara, tölvuleikjaspilara, dansara og bakara og allt þar á milli.

Nokkrir á listanum hafa gefið út bækur á árinu, en stjörnurnar hafa leitað annarra leiða til að auka tekjur sínar með öðrum leiðum en auknu áhorfi, samstarfsaðilum og keyptri umfjöllun.

Hægt er að skoða Youtube-síðurnar með því að smella á nöfnin hér að neðan.

10-9. Colleen Ballinger – 5 milljónir dala

Rhett og Link – 5 milljónir

8-7.German Garmendia 5,5 milljónir

Markiplier – 5,5 milljónir

6-5. Tyler Oakley – 6 milljónir

Rosanna Pansino – 6 milljónir

4. Smosh – 7 milljónir

3. Lilly Singh – 7,5 milljónir

2. Roman Atwood – 8 milljónir

1. PewDiePie – 15 milljónir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×