Meistaradeildin

Fréttamynd

Drogba að tryggja Chelsea áfram

Didier Drogba var rétt í þessu að koma Chelsea í 2-1 gegn Bayern Munchen. Joe Cole sendi fyrir og þar kom Drogba og stangaði boltann í fjærhornið. Markið kom á 80. mínútu og þurfa því leikmenn Bayern að skora þrjú mörk á tíu mínútum til að komast áfram og má því segja að Chelsea sé komið með annan fótinn í undanúrslitin.

Sport
Fréttamynd

Milan komið yfir gegn Inter

Andrei Shevchenko var að koma AC Milan yfir gegn Inter í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Milan sigraði fyrri leikinn 2-0 og eru því möguleikar Inter eru nú orðnir litlir en til að komast áfram þurfa þeir nú að skora 4 mörk.

Sport
Fréttamynd

Chelsea í undanúrslitin

Chelsea tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Chelsea tapaði 3-2 gegn Bayern Munchen í kvöld í þýskalandi en unnu samanlagt 6-5 og mæta annað hvort Juventus eða Liverpool í undanúrslitunum.

Sport
Fréttamynd

Bayern búið að jafna

Bayern Munchen var rétt í þessu að jafna leikinn gegn Chelsea. Bayern fékk aukaspyrnu sem hitti beint á kollinn á Michael Ballack sem átti góðan skalla sem Cech varði frábærlega í stöngina og þaðan út í teig. Þar var Claudio Pizarro einn og óvaldaður og setti boltann í netið nánast af marklínu. Bayern þarf nú tvö mörk á 25 mínútum til að komast áfram í keppninni.

Sport
Fréttamynd

Kallaður í hópinn hjá Liverpool

Franski framherjinn Djibril Cisse hefur mjög óvænt verið kallaður inn í leikmannahóp Liverpool fyrir síðari leik liðsins við Juventus í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Eiður Smári í byrjunarliðinu

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Bayern Munchen í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Eiður Smári er í fremstu víglínu ásamt Didier Drogba. Hjá Bayern koma framherjarnir Claudio Pizarro og Roy Makaay leikfærir en þeir voru ekki með í fyrri leiknum sem endað með 4-2 sigri Chelsea.

Sport
Fréttamynd

Del Piero miðlar til aðdáandanna

Fyrirliði Juventus, Alessandro Del Piero, hefur miðlað til stuðningsmanna Juventus um að haga sér vel á leik liðsins gegn Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.

Sport
Fréttamynd

Lampard kemur Chelsea yfir

Frank Lampard var nú rétt í þessu að koma Chelsea yfir gegn Bayern Munchen, í þýskalandi, í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Markið var nánast endurtekning á markinu sem hann skoraði í fyrri leiknum.

Sport
Fréttamynd

Sagan ekki með Inter

Roberto Manchini hefur fulla trú á að sínir menn í Inter geti gert hið ómögulega og náð að sigra granna sína í AC Milan í Meistaradeildinni.

Sport
Fréttamynd

Gerrard meiddur

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool er meiddur á nára og talið er hugsanlegt að hann missi af síðari leiknum við Juventus í Meistaradeildinni í vikunni.

Sport
Fréttamynd

Gerrard verður ekki með gegn Juve

Nú rétt í þessu staðfestu læknar Liverpool liðsins að fyrirliðinn Steven Gerrard geti ekki leikið með liðinu gegn Juventus í síðari leik liðanna á miðvikudagskvöld.

Sport
Fréttamynd

Mourinho verður í stúkunni

Jose Mourinho segist muni verða í áhorfendastúkunni þegar Chelsea sækir Bayern Munchen heim á Ólympíuleikvanginn í síðari leik liðanna í Meistaradeildinni í vikunni.

Sport
Fréttamynd

Faria hefur ekkert að fela

Leikmenn Bayern Munchen segjast munu mæta fullir sjálfstrausts í síðari leikinn í einvíginu gegn Chelsea í 8-liðum Meistaradeildarinnar í kvöld. Felix Magath, þjálfari Bayern,  hefur endurheimt tvo helstu sóknarmenn sína, Roy Makaay og Claudio Pizarro, sem voru meiddir í fyrri leiknum. Sá leikmaður sem Magath óttast mest í liði andstæðinganna er Didier Drogba.

Sport
Fréttamynd

Leikaraskapur hjá Ballack

Leikmenn Chelsea eru ósáttir við framkomu þýska landsliðsmannsins Michael Ballack hjá Bayern München en þeir telja að hann hafi fengið vítaspyrnu á lokamínútu leiks Chelsea og Bayern München í meistaradeildinni á miðvikudaginn á óheiðarlegan hátt. Ballack skoraði sjálfur annað mark Bæjara úr spyrnunni en leikmenn Chelsea segja að hann hafi fallið í teignum án þess að komið væri við hann

Sport
Fréttamynd

Cole sér fyrir slag við Milan

Enski landsliðsmaðurinn Joe Cole er farinn að sjá fyrir sér úrslitaleik við AC Milan í Meistaradeildinni í sumar og segir að ítalska liðið sé "ótrúlega sterkt".

Sport
Fréttamynd

Ancelotti hógvær

Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri AC Milan var hógvær eftir sigur sinna manna á grönnum sínum í Inter í gærkvöldi, en fagnaði endurkomu markaskorara síns.

Sport
Fréttamynd

Terry sakar Ballack um leikaraskap

John Terry, varnarmaður Chelsea, vandaði leikmönnum Bayern og dómurunum ekki kveðjurnar eftir 4-2 sigur sinna manna á Bayern Munchen í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

Sport
Fréttamynd

Bæjarar lofa átökum

Uli Hoeness, yfirmaður knattspyrnumála hjá Bayern Munchen, lofar sýningu á síðari leik liðsins við Chelsea í Meistaradeildinni.

Sport
Fréttamynd

Liverpool óttast ólæti

Forráðamenn Liverpool óttast að uppúr sjóði meðal stuðningsmanna á síðari leik liðsins við Juventus í Meistaradeildinni í næstu viku.

Sport
Fréttamynd

Vörnin svaf á verðinum

Roberto Manchini, knattspyrnustjóri Inter á Ítalíu, er ekki tilbúinn að játa sig sigraðan, þótt lið hans hafi beðið lægri hlut gegn grönnum sínum í AC Milan í Meistaradeildinni í gær.

Sport
Fréttamynd

Chelsea sagði satt

Nú hafa komið fram ný gögn frá Knattspyrnusambandi Evrópu sem sýna að Chelsea hafði rétt fyrir sér eftir allt, þegar þeir héldu því fram að Frank Rijkaard hefði rætt við Anders Frisk í hálfleik á leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeildinni á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Ítalska pressan óánægð

Ítalska pressan er ekki ánægð með hegðun Ítölsku áhorfendurna á leik Liverpool og Juventus á Anfield í gærkvöldi. Stuðningsmenn Liverpool stóðu fyrir minningarathöfn vegna þeirra 39 sem létust, þar af 38 stuðningsmenn Juventus, á Heysel leikvanginum þegar liðin mættust í úrslitaleik Evrópukeppninnar fyrir tuttugu árum.

Sport
Fréttamynd

Chelsea sigrar Bayern 4-2

Chelsea sigraði Bayern Munchen á Stamford Bridge í Meistaradeild Evrópu í kvöld með fjórum mörkum gegn tveimur. Joe Cole kom Chelsea yfir strax á fjórðu mínútu og og þannig var staðan í hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Eiður í byrjunarliðinu

Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea sem tekur á móti Bayern Munchen í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Stamford Bridge í kvöld. Eiður er í fremstu víglínu ásamt Frakkanum Didier Drogba.

Sport
Fréttamynd

Bayern búið að jafna

Bastian Schweinsteiger var rétt í þessu að jafna fyrir Bayern Munchen gegn Chelsea í Meistaradeild Evrópu.

Sport
Fréttamynd

Mellberg fór í aðgerð í dag

Fyrirliði Aston Villa, Svíinn Olof Mellberg, fór í aðgerð í morgun vegna hnémeiðslanna sem hann varð fyrir í 3-0 sigurleiknum gegn Newcastle á St James Park á laugardaginn. Ekki er ennþá vitað hvað hinn 27 ára gamli varnarmaður verður lengi frá keppni.

Sport
Fréttamynd

Bowyer og Dyer með gegn Sporting

Stjóri Newcastle, Skotinn Graeme Souness, hefur nefnt slagsmálahundana tvo, Lee Bowyer og Kieron Dyer, í hópinn sinn í Uefa keppninni fyrir leikinn í 8-liða úrslitum gegn Sporting Lisbon.

Sport
Fréttamynd

Joe Cole kemur Chelsea yfir

Joe Cole var rétt í þessu að koma Chelsea yfir gegn Bayern Munchen í Meistaradeild Evrópu, en aðeins tæpar fimm mínútur voru liðnar af leiknum þegar Cole skoraði. Cole tók skot utan af velli, skotið virtist meinlaust og Oliver Kahn virtist vera með þetta allt á hreinu. En skotið fór í brasilíska varnarmanninn Lucio og breytti um stefnu og Kahn var varnarlaus.

Sport