Tækni

Fréttamynd

Neyðarlínan vill vita um símana

Neyðarlínan leggur áherslu á að fyrirtækjum sem hyggjast bjóða símaþjónustu sem byggir á internettækni (IP símar) verði gert að hafa innbyggða staðarákvörðun í símkerfi sín.

Innlent
Fréttamynd

Mac OS X á Íslensku

Apple á Íslandi hefur íslenskað Mac OS X stýrikerfið. Um er að ræða grunnþýðingu á öllum helstu þáttum kerfisins, auk þess tvö mest notuðu forritin, Safari netvafrinn og tölvupóstforritið Mail, voru þýdd.

Innlent
Fréttamynd

Símafyrirtæki fá samkeppni

Upplýsingatæknigeirinn horfir til símaþjónustu yfir internetið sem sóknarfæris. Nú hillir undir reglur um IP-símaþjónustu sem ýtt gæti undir samkeppni við hefðbundin fjarskiptafyrirtæki. IP-símar gætu jafnvel ógnað farsímum. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Ungmenni eiga nær öll farsíma

99 prósent fólks á aldrinum 16 til 24 ára eiga eða hafa aðgang að farsíma, samkvæmt nýrri neytendakönnun Póst- og fjarskiptastofnunar. Jafnframt kemur fram að einungis fimmtungur fólks hefur nokkurn tímann skipt um símafyrirtæki.

Innlent
Fréttamynd

Gagnvirkt sjónvarp Símans

Síminn hefur ákveðið að ganga til samstarfs við Thales Broadcast & Multimedia og IBM um tæknilausn til dreifingar á stafrænu gagnvirku sjónvarpi yfir ADSL-kerfið.

Innlent
Fréttamynd

Nýr netvafri og hraðari

Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software og hugbúnaðarfyrirtækið SlipStream Data kynntu í gær fyrirætlanir sínar um að sameina netvafratækni Opera vef- og tölvupóstshröðunartækni SlipStream.

Innlent
Fréttamynd

Skæður vírus kominn á kreik

Nýr og mjög skæður tölvuvírus er kominn á kreik og hefur hann þegar borist til Íslands. Sagt er frá þessu í danska blaðinu Politiken og sagt að þetta sé nýtt afbrigði af hinum skæða Bagle. Ef vírusinn er ræstur reynir hann að dreifa sér um tölvuna og opna bakdyr þannig að þessir óprúttnu aðilar geti misnotað hana síðar.

Innlent
Fréttamynd

Íslandsmiðill með lággjalda áskriftarsjónvarp

Fjarskiptafyrirtækið Íslandsmiðill ehf. gangsetti formlega í dag fyrsta þráðlausa stafræna sjónvarpsdreifikerfið á Íslandi. Íslandsmiðill býður upp á lággjalda áskriftarsjónvarp, VAL+ og er hægt að velja á annan tug erlendra og innlendra sjónvarpsstöðva. Útsendingasvæðið er í fyrstu einskorðað við suðvesturhorn landsins.

Innlent
Fréttamynd

Fjöltengi samhliða ljósleiðara

Gagnaflutningar um rafmagnslínur sem Fjöltengi Orkuveitu Reykjavíkur hefur boðið upp á verða áfram í boði þrátt fyrir áherslu Orkuveitunnar á ljósleiðaravæðingu heimila í höfðuborginni.

Innlent
Fréttamynd

Heimasíðan bara fyrir Bandaríkin

Það þýðir lítið fyrir áhugamenn um bandarísk stjórnmál utan Bandaríkjanna að reyna að sækja sér upplýsingar um George W. Bush Bandaríkjaforseta á heimasíðu hans. Heimasíðunni var á dögunum lokað fyrir allri umferð frá löndum utan Bandaríkjanna að því er virðist til að minnka álag á hana.

Erlent
Fréttamynd

EMC gerir SE-VAR Partner samning við Tæknival

Tæknival og bandaríska fyrirtækið EMC, stærsta fyrirtæki heims á sviði gagnageymslulausna, hafa undirritað samstarfssamning um sölu og þjónustu á EMC búnaði á Íslandi. Tæknival er eina íslenska fyrirtækið sem uppfyllir þær kröfur sem EMC gerir um þjónustu og hefur eitt íslenskra fyrirtækja beinan aðgang að EMC, en alls eru samstarfsfyrirtæki EMC sextíu talsins um heim allan.

Innlent
Fréttamynd

Bilun í sjálfvirkum símsvara

Bilun í gagnagrunni Þjónustuvers Símans gerði það að verkum að frá því á föstudag áttu viðskiptavinir í miklum erfiðleikum með að ná í þjónustunúmerið 800 7000 og lá símsvörun niðri um tíma á föstudagskvöldið. Aðfaranótt laugardags var gert við til bráðabirgða þannig að hægt væri að sinna lágmarksþjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Netumferð tryggari á eftir

Netumferð innanlands á ekki að truflast þó svo að samband falli niður við umheiminn eftir að settur var upp speglunarpunktur fyrir einn af rótarnafnaþjónum netsins við skiptipunkt íslenskrar netumferðar (RIX - Reykjavík Internet Exchange) í Tæknigarði við Dunhaga í Reykjavík síðasta fimmtudag.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri vélmenni inn á heimilin

Sérfræðingar hjá Sameinuðu þjóðunum búast við því að sala á vélmennum til heimilisnota muni sjöfaldast fyrir árið 2007. Heimili í Bandaríkjunum nýta sér nú í auknum mæli þjónustu vélmenna við ýmis misvinsæl heimilisstörf. Vinsælast er að kaupa vélmenni sem sjá um að slá blettinn.

Erlent
Fréttamynd

Fékk ekki að heita @

Kínverskur maður hefur fengið synjun frá kínverskum stjórnvöldum vegna beiðnar um að láta son sinn heita @. Maðurinn hélt því fram að táknið sem notað er í öllum tölvupósti og fyrirfinnst á öllum lyklaborðum sé svo algengt að það væri gjaldgengt sem mannsnafn.

Erlent
Fréttamynd

Besti vefurinn tilnefndur

Val á besta íslenska vefnum stendur þessa dagana yfir vegna Íslensku vefverðlaunanna sem veitt verða í fjórða sinn föstudaginn 29. október. Hægt er að tilnefna vefi til miðnættis annað kvöld á vef <strong><a href="http://www.vefsyn.is" target="_blank">Vefsýnar</a></strong>.

Innlent
Fréttamynd

Tilefnislítið lögguáhlaup

Bjarki Magnússon, sem var handjárnaður í stóra tölvumáli lögreglunnar, segir margfalt meiri skipti á tölvuskrám eiga sér stað á vefsvæði Deilis en Ásgarði, sem lögreglan réðst á. Hann segist hafa fengið ábendingu um komu lögreglunnar.

Innlent
Fréttamynd

Útflutningur fjórtánfaldast

Íslenskur upplýsingatæknigeiri hefur verið að taka við við sér eftir niðursveiflu og jukust tekjur af útflutningi hugbúnaðar og þjónustu um 9,5 prósent milli áranna 2002 og 2003. Meira er nú flutt til Evrópu en áður og minna til Bandaríkjanna.

Innlent
Fréttamynd

Hamlar gegn bankaránum

Á útibússtjóraráðstefnu Landsbankans um helgina var kynnt nýstárleg seðlavél fyrir bankaútibú sem eykur uppgjörs- og afgreiðsluhraða og sér til þess að reiðufé verði ekki aðgengilegt.

Innlent
Fréttamynd

Aukinn hraði ADSL hjá Símanum

Í október og nóvember verður aukinn hraði á öllum ADSL-tengingum viðskiptavina Símans. Þegar hefur verið hafist handa við að auka hraðann og þurfa viðskiptavinir ekki að biðja um hann sérstaklega.

Innlent
Fréttamynd

Samkeppni við Google harðnar

Bóksalinn Amazon opnaði fyrir skömmu nýja leitarvél á slóðinni a9.com. Leitin þar byggist á svipaðri tækni og Google. Viðmótið er einfalt en til viðbótar upplýsingum í textaformi sýnir leitarvél Amazon einnig þær myndir sem vélin finnur á vefnum og geta tengst leitinni.

Erlent
Fréttamynd

80% drengja hala ólöglega niður

Um áttatíu prósent drengja í tíunda bekk sækja kvikmyndir og tónlist á Netið með samskonar forriti og nú er til rannsóknar hjá lögreglunni vegna meints höfundarréttarstuldar. Einn höfuðpauranna í því máli ákvað að leysa frá skjóðunni til þess að komast hjá gæsluvarðhaldi.

Innlent
Fréttamynd

Tekið á stafrænum rummungum

Í Bandaríkjunum er verið að herða löggjöf um höfundarréttarbrot. Stafrænn hugverkaþjófnaður er talinn vaxandi vandamál víða um heim. Spjótum er beint bæði að tölvunotendum sem skiptast á skrám og þjófum sem afrita efni til sölu.

Innlent
Fréttamynd

Metið á a.m.k. hundruðir milljóna

Þrjátíu manna lið Ríkislögreglustjóra og lögregluembætta víða um land gerði í gær húsleit hjá tólf einstaklingum á nokkrum stöðum á landinu og handtóku nokkra vegna gruns um að þeir sæktu og dreifðu ólöglega kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum í gegnum Netið. Verðmæti notkunar þess efnis sem um ræðir hleypur a.m.k. á hundruðum milljóna króna.

Innlent
Fréttamynd

Höfuðpaurar 100 manna hóps

Tólf menn, sem grunaðir eru um stórfellda ólöglega dreifingu á kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum á Netinu, voru handteknir í gær eftir umfangsmikla húsleit Ríkislögreglustjóra og lögreglu víða um land. Krafist hefur verið gæsluvarðhalds yfir einum þeirra. Hald var lagt á búnað í fórum mannanna en talið er að þeir séu höfuðpaurar í hundrað manna lokuðum hópi. 

Innlent
Fréttamynd

Leit vegna ólöglegrar dreifingar

Þrjátíu manna lið Ríkislögreglustjóra og lögregluembætta víða um land gerði í gær húsleit hjá tólf einstaklingum á nokkrum stöðum á landinu vegna gruns um að þeir sæktu og dreifðu ólöglega til annarra, kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum í gegnum Netið. Nokkrir voru handteknir.

Innlent
Fréttamynd

ADSL notkun hrundi

Notkun á ADSL-neti Símans dróst saman um 50 til 60 prósent eftir að menn frá ríkislögreglustjóra lögðu hald á tölvur og tölvubúnað tólf einstaklinga í húsleitum í fimm lögregluumdæmum á þriðjudag.

Innlent
Fréttamynd

Netumferð minnkar um 40%

Gagnaumferð á Netinu hér á landi hefur minnkað um 40% eftir aðgerð lögreglunnar og samtaka höfundarrétthafa í gær þar sem hald var lagt á tölvur og gögn í tólf húsleitum.

Innlent
Fréttamynd

Þráðlaust dreifikerfi úti á landi

Fjarskiptafélagið eMax vill byggja upp þráðlaust dreifikerfi á landsbyggðinni í samkeppni við Símann. Framkvæmdastjóri eMax segir umræðu stjórnmálamanna um uppbyggingu Símans á villigötum. </font /></b />

Innlent