Menning

Suðrænt og seiðandi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Bylgja Dís sér um sönginn á tónleikunum.
Bylgja Dís sér um sönginn á tónleikunum. Vísir/Stefán
Suðræn stemning verður á hádegistónleikum í Fríkirkjunni á morgun, fimmtudag. Þá flytja þær Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari verk eftir X. Montsalvatge og John Corigliano, ásamt bandarískum þjóðlögum eins og Swing low.

Viðburðurinn tilheyrir röðinni Á ljúfum nótum.

Tónleikarnir hefjast klukkan 12 og taka um hálftíma.

Aðgangseyrir er 1.500 krónur og ekki er tekið við greiðslukortum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×