Styrkjamál Sjálfstćđisflokksins í hnotskurn

Vísir Innlent 16. apríl 2009 22:33
Valhöll
Valhöll
Þann 7.apríl sagði fréttastofa Stöðvar 2 frá því að FL Group hefði styrkt Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna, aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Í kjölfarið hófst atburðarrás sem var nokkuð klaufaleg fyrir flokkinn og tímasetningin var ekki sem best, þar sem einungis átján dagar voru í kosningar. Framkvæmdarstjóri flokksins sagði af sér og formaður flokksins tilkynnti síðar að styrkurinn yrði endurgreiddur, auk 25 milljóna króna styrks sem flokkurinn fékk frá Landsbankanum. Fyrrverandi formaður flokksins tók á sig alla ábyrgð, en ýmsir þar á meðal Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður, blönduðustu í málið. Hér að neðan má sjá samantekt af málinu.

Líkt og fyrr segir var fyrst sagt frá styrk FL Group í kvöldfréttum Stöðvar 2 þann 7.apríl. Í fréttinni kom fram að styrkurinn hefði borist flokknum þann 29.desember árið 2006, örfáum dögum áður en lögum um hámarksframlag til stjórnmálaflokka var breytt.

Hannes Smárason þáverandi forstjóri FL Group gaf vilyrði fyrir styrknum en ekki var vitað hver það var sem tók við styrknum fyrir hönd flokksins. Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, sagði að flokkurinn hefði ekki frekar en aðrir flokkar verið með opið bókhald fyrir þann tíma. Flokkurinn hygðist að svo stöddu ekki tjá sig um einstök fjárframlög til flokksins sem áttu sér stað fyrir setningu laganna.

Kjartan Gunnarsson, einn helsti bandamaður Davíðs Oddssonar, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, starfaði við hlið framkvæmdastjóra flokksins, Andra Óttarssyni á þessum tíma.

Enginn vissi um styrkinn

Síðar sama kvöld tjáði Sigurður Lindal lagaprófessor sig um málið sem hann sagði siðferðislega ámælisvert. Stoðir, áður FL-Group, sögðu upplýsingarnar ekki frá sér komnar auk þess sem fyrrum ráðherrarnir Árni M. Mathiesen og Björn Bjarnason sögðust ekki hafa haft hugmynd um þennan rausnarlega styrk félagsins til flokksins. Björn sagðist hafa aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu, hefði hann haft pata af henni og væri þetta rétt.

Í hádeginu daginn eftir var sagt frá því að Sjálfstæðisflokkurinn hefði sjálfur haft frumkvæði að því að biðja um styrkinn frá FL Group en ekki var vitað hverjir það voru innan flokksins sem stóðu að því. Forystumenn flokksins virtust koma af fjöllum.

Þorgeir Baldursson fyrrum formaður fjármálaráðs flokksins sagðist hafa látið af störfum fyrir þann tíma sem styrkurinn kom í hús og sagðist aldrei á sínum ferli hafa heyrt um fjárhæð sem þessa. Í sama streng tók Vilhjálmur Egilsson sem nú gegnir formennsku í fjármálaráði Sjálfstæðisflokksins. Hann hafi tekið við eftir að styrkurinn var veittur og Andri Óttarsson framkvæmdarstjóri væri bestur til þess að svara fyrir styrkinn. Erfitt reyndist að ná í Andra sem virtist vera upptekinn við fundarsetu í Valhöll þennan sama daga.

Bolli Kristinsson, gjarnan kenndur við Sautján, sat í fjármálaráði flokksins í um tuttugu ár. Hann sagðist í samtali við fréttastofu aldrei hafa heyrt um styrki sem þessa og neitaði að trúa því að Kjartan Gunnarsson hefði samþykkt styrk sem þennan, það væri í andstöðu við þær reglur sem hann boðaðið á meðan hann gegndi starfi framkvæmdarstjóra.

Heimildir fréttastofu innan úr flokknum hermdu að málið væri nú í höndum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Bjarna Benediktssonar en miðstjórn flokksins tók málið fyrir á fundi sínum fyrr um daginn. Það reyndist síðar rétt þar sem Þorgerður og Bjarni mættu ekki á þingflokksfund flokksins klukkan fjögur. Þau funduðu um málið og reyndu að ná lendingu sem fyrst, þar sem Bjarni átti að mæta á opinn Borgarafund í Ríkissjónvarpinu þá um kvöldið.

Kjartan Gunnarsson sagðist ekkert vita um styrkinn og Guðlaugur Þór Þórðarson var dreginn fram í dagsljósið. Hann sagðist hinsvegar ekkert hafa með fjármál flokksins að gera og á þessum tíma hefði hann legið á sjúkrahúsi, eins og alþjóð vissi. Árið 2006, þegar styrkurinn var veittur, var Guðlaugur Þór formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur en FL Group í félagi við Glitni og verkfræðistofuna VKG-Hönnun, stofnuðu Geysi Green Energy í byrjun árs 2007, sem ætlað var að fjárfesta í verkefnum tengdum sjálfbærri orkuframleiðslu víða um heim. Leiddar voru að því líkur að styrkurinn gæti tengst þessum áætlunum. Guðlaugur hinsvegar neitaði alfarið, og málið var enn í höndum flokksforystunnar.

Geir H. Haarde tekur alla ábyrgð

Geir H. Haarde fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins var á þessum tíma í krabbameinsmeðferð í Amsterdam í Hollandi. Rétt fyrir kvöldfréttir barst hinsvegar yfirlýsing frá Geir þar sem hann tók alla ábyrgð á málinu. Hann sagði að með sinni vitund og vilja hafi á þessum tíma verið ráðist í mikið átak til að rétta við fjárhag flokksins, í samræmi við þær reglur um fjármál stjórnmálaflokka sem þá var unnið eftir. Komu þar fjölmargir að verki. Hann sagði ábyrgðina alla vera sína og framkvæmdarstjórar flokksins, núverandi og fyrrverandi, bæru þar enga ábyrgð.

Ábyrgð Geirs jókst þó til muna sjö mínútum eftir að tilkynningin var send út því þá kom sama tilkynning aftur, með einni auka setningu þó. „Sama er að segja um hátt framlag frá Landsbanka Íslands frá sama tíma."

Í ljós kom að Landsbankinn hafði einnig styrkt flokkinn ríflega um svipað leyti, eða um 25 milljónir króna. Bankaráð Landsbankans sagðist ekki hafa samþykkt umræddan styrk og Bjarni Benediktsson sagði FL styrkinn á engan hátt tengjast REI-málinu.

Kveikti í andstæðingum

Daginn eftir fór að færast enn meira fjör í leikinn þegar andstæðingar Sjálfstæðisflokksins fóru að tjá sig um styrkina, sem nú skyndilega voru orðnir tveir. Steingrímur J. Sigfússon var harðorður og sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa svikið hina flokkana.

„Ég hafði satt best að segja ekki hugmyndaflug til að láta mér detta í hug að þá færu einhverjir flokkar þannig að, að þeir sæktu sér milljónatugi til fyrirtækja á laun rétt fyrir áramót og þægju svo eftir áramótin hækkaðan ríkisstyrk," sagði Steingrímur.

Allir fjölmiðlar landsins voru komnir á bóla kaf í málið og kaffistofur bæjarins kepptust við að ræða málið. Nú voru sextán dagar í kosningar.

Morgunblaðið fullyrti í grein sinni um málið að Guðlaugur Þór Þórðarson hefði haft forgöngu um að útvega flokknum styrki í árslok 2006. Honum hafi þó ekki verið kunnugt um upphæðina. Guðlaugur hefði boðið Anda Óttarssyni þá nýjum framkvæmdastjóra flokksins að hafa milligöngu um styrki frá um 10 fyrirtækjum, sem hvert um sig myndi leggja til um þrjár milljónir króna þannig að undir forystu FL-Group fengjust um 30 milljónir króna í flokkssjóðinn. Þetta stangaðist á við fyrri orð þingmannsins í málinu, en hann hafði setið í í nefnd sem fjallaði um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka sem Kjartan Gunnarsson veitti forystu.

Styrkirnir endurgreiddir

Bjarni Benediktsson formaður flokksins lýsti því yfir að styrkirnir yrðu endurgreiddir. Hann sagðist sár og svekktur vegna málsins en hann léti það ekki buga sig. Daginn eftir barst síðan yfirlýsing frá Andra Óttarssyni framkvæmdarstjóra flokksins þar sem fram kom að hann ætlaði að láta af störfum. Hann tók þó skýrt fram að hann hefði ekki átt frumkvæði að því að haft var samband við FL Group eða Landsbankann um styrkveitingu. Þá hafi hann ekki tekið ákvörðun um að veita styrkjunum viðtöku. Nú voru fimmtán dagar í kosningar og enginn vissi hver sóttist eftir styrkjunum.

Bjarni og Þorgerður funduðu þennan dag með Guðlaugi Þór Þórðarsyni um málið. Einnig kom í ljós að Sigurjón Þ. Árnason fyrrum bankastjóri Landsbankans tók einn ákvörðun um að styrkja flokkinn um tuttugu og fimm milljónir króna.

Siðfræðingur sagði sig úr sambandi ungra sjálfstæðismanna og hverfafélögin í Reykjavík kepptust við að lýsa yfir stuðningi við Guðlaug Þór Þórðarson.

Sjálfstæðismenn birtu á heimasíðu sinni lista yfir þau fyrirtæki sem styrktu flokkinn um meira en eina milljón á árinu 2006. Um níu fyrirtæki er að ræða sem greiddu samtals rétt tæpa 81 milljón í styrki.

Athygli vakti að Landsbankinn styrkti Sjálfstæðisflokkinn með tveimur framlögum, fyrst fimm milljóna króna framlagi og síðan risastyrknum upp á 25 milljónir.

Tryggvi Gunnarsson sem sæti á í Rannsóknarnefnd um bankahrunið sagði nefndina ætla að skoða styrki til stjórnmálaflokka. Heimildir fréttastofu þennan dag hermdu að Kjartan Gunnarsson hefði vitað um styrkina og einnig kom í ljós að Haukur Leósson endurskoðandi flokksins hefði gert athugasemd við styrkina á sínum tíma en þær athugasemdir hefði meðal annars Kjartan virt að vettugi.

Þegar fjórtán dagar voru í kosningar kom fyrst í ljós hverjir það voru sem öfluðu styrkjanna fyrir flokkinn. Þorsteinn M. Jónsson, gjarnan kenndur við kók, sá um FL styrkinn og Steinþór nokkur Jónsson sá um að ná í styrkinn frá Landsbankanum. Í yfirlýsingu frá þeim félögum kom í ljós að Guðlaugur Þór Þórðarson, sem ekkert hefur með fjármál flokksins að gera, hafði samband við þá og upplýsti um bágborna fjárhagsstöðu flokksins. Guðlaugur hafi hinsvegar ekki haft frekari afskipti af málinu.

Sakaðir um mútur

Varaformaður Framsóknarflokksins sagði málið ámælisvert á sama tíma og varaformaður Sjálfstæðisflokksins sagði málið óafsakanlegt.

„Mér finnst þetta vera óverjanlegt. Það voru hrein og klár mistök að hálfu flokksins að taka við þeim. Það er eðlilegt að flokkar hafi á þessum tíma leitað til einstaklinega eða fyrirtækja en í svona miklu mæli er í rauninni óafsakanlegt," sagði Þorgerður, þrettán dögum fyrir kosningar.

Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna sem sat í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í REI-málinu sagði FL styrkinn vekja upp spurningar um mútur. Það hefur reyndar Grétar Mar Jónsson þingmaður Frjálslyndra einnig gert í þinginu við litla hrifningu sjálfstæðismanna.

Síðustu daga hefur verið uppi hávær krafa um að stjórnmálamenn upplýsi um þá styrki sem þeir þiggja í prófkjörum. Guðlaugur Þór fór fram á að Ríkisendruskoðun færi yfir störf sín sem formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. Síðar kom í ljós að embættið hefur ekki heimild til þess að gera slíkt en Guðlaugur hefur nú vísað því máli til innri endurskoðunnar Reykjavíkurborgar.

Nokkuð hart hefur verið sótt að Óskari Bergssyni borgarfulltrúa Framsóknarflokksins að upplýsa um tengsl sín við byggingarfyrirtækið Eykt. Framsóknarflokkurinn hefur nefnilega einnig opnaði bókhald sitt og þar var Eykt stærsti stuðningsaðili flokksins.

Í dag eru níu dagar til kosninga og samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Morgunblaðið og Rúv á landsvísu ætla 23,3% svarrenda að kjósa flokkinn.

Það þýðir að flokkurinn nær inn 16 þingmönnum eða níu þingmönnum færra en í kosningunum 2007.

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 26. maí. 2012 08:00

Átti ekki von á ađ grunur um brot kćmi upp

Sérstakur saksóknari var međvitađur um fyrirćtlanir ţeirra Guđmundar Hauks Gunnarssonar og...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 07:30

Hentar ekki öllum ađ vera viđskiptavinir MP

MP Banki mun leggja nýtt gjald á viđskiptavini sem annađ hvort eiga eđa skulda minna en tv...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 06:45

Verđbólga lćkkađi merkjanlega

Tólf mánađa verđbólga lćkkađi úr 6,4 prósentum í 5,4 prósent í maímćlingu Hagstofunnar. Va...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 06:00

Risaratsjár Monge forđa geimárekstrum

Franska skipiđ Monge liggur viđ Reykjavíkurhöfn. Ţađ er einstaklega vel tćkjum búiđ og fyl...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 04:00

Viđrćđur um fjármögnun hefjast í nćstu viku

Formlegar viđrćđur um fjármögnun Hverahlíđarvirkjunar hefjast í nćstu viku. Ađ sögn Ingvar...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:54

Framhaldiđ af Hungurleikunum komiđ út á íslensku

Slökkviliđsbíll var til taks ţegar bóksalar sóttu framhald Hungurleikanna, Eldar kvikna, á...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:45

Matarolía af ökrum íslenskra bćnda

Íslensk matarolía af akrinum er ţađ nýjasta sem íslenskir bćndur bjóđa landsmönnum en ţett...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:02

Mikill spenningur í Bakú - Gréta og Jónsi tilbúin

„Ég held ađ ţetta fari ţannig ađ Svíţjóđ vinni," segir Gréta Salóme Stefánsdóttir, s...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 20:02

Jónsa og Grétu Salóme spáđ 2. sćti

OGAE, eđa Organisation Générale des Amateurs d l'Eurovision, er heiti á alţjóđlegum samtök...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 18:13

Hvađ gerum viđ ef viđ vinnum Eurovision?

"Ţađ er ekki til nein viđbragđsáćtlun í ţessu máli,“ segir Katrín Jakobsdóttir, menn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 19:45

Catalina markađi djúp spor í flugsögu Íslands

Íslenskir flugáhugamenn fá langţráđan draum uppfylltan á Reykjavíkurflugvelli um helgina; ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 19:20

Raunhćft ađ ljúka viđrćđunum fyrir kosningar

Stefan Füle, stćkkunarstjóri Evrópusambandsins, segist telja ađ öll spilin í ađildarviđrćđ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 18:30

Lögreglumenn fóru ađ selja trúnađarupplýsingar haustiđ 2011

Lögreglumennirnir tveir sem sérstakur saksóknari hefur kćrt til ríkissaksóknara vegna brot...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:50

Harđur árekstur í Hafnarfirđi

Harđur tveggja bíla árekstur varđ á gatnamótum Hafnarfjarđarvegar og Álftanesvegar fyrir s...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:34

Ţriđjungur ökumanna óku of hratt

Brot 33 ökumanna voru mynduđ í Langarima í Reykjavík í dag. Samkvćmt tilkynningu lögreglu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:32

Kannabis í kjallara

Tvö hundruđ grömm af marijúana í sölupakkningum fundust viđ húsleit í kjallaraíbúđ í miđbo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:55

Ólafur og Ţóra jöfn samkvćmt nýrri könnun MMR

Nákvćmlega sami fjöldi myndi kjósa Ţóru Arnórsdóttur og Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:33

Segir ađgerđirnar bitna mest á höfuđborgarsvćđinu

"Ţessar ađgerđir bitna mest á höfuđborgarsvćđinu, meirihluti ţeirra sem láta af störfum er...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:30

Safna hjólum fyrir efnaminni börn

Hjól sem standa óhreyfđ inni í bílskúr geta nú öđlast nýtt líf. Barnaheill og hjólreiđakep...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:47

Grunađir innbrotsţjófar úrskurđađir í gćsluvarđhald

Tveir karlar á ţrítugsaldri hafa veriđ úrskurđađir í gćsluvarđhald til 1. júní ađ kröfu lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:39

Hlakkar til ađ hefja störf á nýjum vettvangi

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsćtisráđherra, segist hlakka til ađ hefja störf hjá OPUS lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:37

Hvetur til áhlaups á Landsbankann

Jens Garđar Helgason, formađur bćjarráđs í Fjarđabyggđ, hvetur íbúa á Fáskrúđsfirđi og Esk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 14:21

Björn Valur: "Ţađ er eitthvađ súrt viđ ţetta“

"Ţetta slćr menn,“ segir Björn Valur Gíslason, ţingflokksformađur Vinstrihreyfingari...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:40

Krakkar í Álfhólsskóla komu fćrandi hendi

Hressir krakkar í 7 EJ í Álfhólsskóla í Kópavogi komu međ gömul hjól og gáfu í söfnun Barn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:26

Yfirlögregluţjónn kćrir falsađa undirskrift á lista Ástţórs

Daníel Guđjónsson, yfirlögregluţjónn á Akureyri, hefur kćrt fölsun á undirskrift sinni á m...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:28

Segir eđlilegt ađ lögreglan rannsaki frambođslista

Ástţór Magnússon forsetaframbjóđandi hefur skilađ hátt í 200 undirskriftum til viđbótar í ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:25

Óupplýst hver stóđ á bak viđ stćrsta fíkniefnainnflutning síđasta árs

Enn er óupplýst hverjir stóđu ađ innflutningi tíu kílóa af amfetamíni og rúmlega átta ţúsu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:23

Fangelsismálastjóri: Reynslulausn fylgja ströng skilyrđi

Rúnar Bjarki Ríkharđsson, sem fékk einn ţyngsta dóm sem falliđ hefur hér á landi, fyrir mo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:38

Geir Haarde kominn í nýja vinnu

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsćtisráđherra, hefur gengiđ til liđs viđ OPUS lögmenn sem r...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:27

Međ loftbyssu og skotfćri í Leifsstöđ

Karlmađur var međ loftbyssu og skotfćri í fórum sínum í Flugstöđ Leifs Eiríkssonar í fyrra...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:16

Borgin kaupir dráttarvélar fyrir 160 milljónir

Reykjavíkurborg áformar ađ kaupa dráttarvélar fyrir 160 milljónir króna á nćstunni. Bréf f...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:10

Ákćrđur fyrir hćttulega líkamsárás

Tuttugu og átta ára gamall karlmađur hefur veriđ ákćrđur fyrir sérstaklega hćttulega líkam...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 10:28

Bjóđa upp á nettengingu í háloftunum

Ţeir sem fljúga međ flugfélaginu Norwegian frá Keflavík til Osló í sumar geta veriđ netten...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:55

Fundu fíkniefni á farţega

Lögreglan á Akranesi stöđvađi í gćrkvöldi bifreiđ sem var á ferđ viđ bćinn. Ţrír menn reyn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:30

Tćplega fimm ára fangelsi í Straumsvíkurmálinu

Sćvar Sverrisson, höfuđpaurinn í Straumsvíkurmáinu, var dćmdur í fjögurra og hálfs árs ósk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:59

Dómur kveđinn upp í stóru fíkniefnamáli

Dómur verđur kveđinn upp í einu stćrsta fíkniefnamáli síđasta árs klukkan korter yfir níu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:18

Ólafur Ragnar tekur forystu

Stuđningur viđ áframhaldandi setu Ólafs Ragnars Grímssonar í embćtti forseta hefur aukist ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:00

Vinnuhópur meti afnám hafta

Íslensk stjórnvöld og framkvćmdastjórn Evrópu tilkynntu í gćr um myndun sameiginlegs vinnu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tilraun til hćttulegrar árásar

Hćstiréttur stađfesti í gćr dóm yfir 38 ára gömlum karlmanni, Herđi Ţráinssyni, fyrir fjöl...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tugir mála á leiđ til sérstaks saksóknara

Skattrannsóknarstjóri hefur sent 66 mál til sérstaks saksóknara og tugir til viđbótar eru ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:00

Reglur hertar vegna Annţórs og Barkar

Öryggisgangur á Litla-Hrauni verđur rýmdur fyrir tvo fanga sem grunađir eru um manndráp áđ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:30

Málflutningur í september

Munnlegur málflutningur í máli ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave hefst ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Kosiđ um sameiningu í haust

Íbúar Garđabćjar og Álftaness munu greiđa atkvćđi um ţađ í haust hvort sameina eigi sveita...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Hefta vind og binda kolefni

Vísbendingar eru um ađ aukinn trjágróđur og byggđ innan borgarmarka Reykjavíkur hafi dregi...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Herferđin kom til af nauđsyn

Lćkkun á veiđigjaldi frá ţví sem nú er í frumvarpi ríkisstjórnarinnar skiptir ekki máli. F...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Brjóstabollan gaf 1,5 milljónir

Landssamband bakarameistara, LABAK, safnađi 1,5 milljónum króna til styrktar grunnrannsókn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Bođar skođun á innra skipulagi embćttisins

Verklagsreglur hjá sérstökum saksóknara verđa endurskođađar í kjölfar ţess ađ embćttiđ kćr...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 milljónir gegn glćpastarfsemi

Allsherjar- og menntamálanefnd Alţingis beinir ţeim tilmćlum til innanríkisráđherra ađ und...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 missa vinnuna í hagrćđingu

Starfsmönnum Landsbanka Íslands fćkkar um 50 um mánađamótin vegna hagrćđingarađgerđa. Átta...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:30

Sendu Samkeppniseftirliti kvörtun

Wow air hefur kćrt til Samkeppniseftirlitsins synjun IGS, dótturfélags Icelandair, á ţví a...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Innlent / Styrkjamál Sjálfstćđisflokksins í hnotskurn