Viðskipti innlent

Steinþór Pálsson lætur af störfum hjá Landsbankanum

Birgir Olgeirsson skrifar
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. vísir/vilhelm
Steinþór Pálsson hefur látið af störfum sem bankastjóri Landsbankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri Fjármála og staðgengill bankastjóra, hefur tekið við stjórn bankans. Verður staða bankastjóra auglýst svo fljótt sem verða má. 

Í tilkynningunni segist Steinþór skilja sáttur við sín störf.

Steinþór Pálsson þegar hann ræddi við mótmælendur í Landsbankanum vegna Landsbankans.Vísir.
Ríkisendurskoðun sendi nýlega frá sér skýrslu þar sem kom fram hörð gagnrýni á eignasölu Landsbankans á árunum 2010 til 2016. Var það mat Ríkisendurskoðunar að þessar eignasölur á undanförnum árum hefðu skaða orðspor Landsbankans. 

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er sérstaklega fjallað um sölu Landsbankans á eignarhlutum sínum í Vestia og Icelandic Group árið 2010, Promens árið 2011 og jafnframt Framtakssjóði Íslands og IEI árið 2014.

Einnig er fjallað um söluna á hlutum bankans í Borgun og Valitor árið 2014. Bendir Ríkisendurskoðun á að allar þessar sölur hafi farið fram í lokuðu ferli og í sumum tilvikum hafi líklega fengist lægra verð fyrir eignar­hlutina en vænta mátti mið­að við verð­mætin sem þeir geymdu.

Þá er Landsbankinn gagnrýndur sérstaklega fyrir að hafa ekki aflað sér nægilegra upplýsinga um greiðslukortafyrirtækið Borgun, meðal annars um aðild fyrirtækisins að Visa Europe Ltd. Segir Ríkisendurskoðun erfitt að meta þá fjárhæð sem Landsbankinn fór á mis við þegar fyrirtækið var selt Visa International, þar sem hagnaður Borgunar (um 6,2 milljarðar) hafi orðið til eftir sölu eignarhlutarins.

Hér fyrir neðan má lesa tilkynninguna í heild:

Bankaráð Landsbankans og Steinþór Pálsson, bankastjóri, hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum hjá bankanum. Steinþór hefur verið bankastjóri frá 1. júní 2010. Hreiðar Bjarnason framkvæmdastjóri Fjármála og staðgengill bankastjóra hefur tekið við stjórn bankans. Staða bankastjóra verður auglýst svo fljótt sem verða má

„Ég hef verið í Landsbankanum í sex og hálft viðburðaríkt ár. Gríðarlega mikið hefur áunnist á þessum árum við að endurreisa fjárhag heimila og fyrirtækja. Landsbankinn hefur tekið stakkaskiptum á þessu tíma og ég skil sáttur við mín störf. Fjárhagsstaða bankans er mjög traust og markaðshlutdeild bankans hefur vaxið. Ég kveð samstarfsfólk mitt með hlýjum hug og baráttukveðjum til framtíðar,“ segir Steinþór Pálsson.

Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs:

„Bankaráðið þakkar Steinþóri öflugt og árangursríkt starf fyrir Landsbankann. Mörg brýn og krefjandi úrlausnarefni hafa verið til lykta leidd undir hans forystu og staða bankans hefur styrkst mikið á undanförnum árum. Nú bíða Landsbankans nýjar áskoranir og telur bankaráðið rétt að takast á við þær með nýjum bankastjóra. Við óskum Steinþóri velfarnaðar í framtíðinni.“


Tengdar fréttir

Framtíð bankastjórans í óvissu

Ríkisendurskoðun átelur Landsbankann fyrir aðferð við sölu eigna árin 2010 til 2016. Orðsporið sé skaðað. Endurheimta þurfi traust. Bankinn aflaði sér ekki nægra upplýsinga um Borgun fyrir sölu fyrirtækisins.

Landsbankinn tekur skýrslu Ríkisendurskoðunar alvarlega

Í skýrslunni er það aðallega gagnrýnt að bankinn hafi selt eignir í lokuðu söluferli á því tímabili sem skýrslan nær til en gagnrýnin snýr meðal annars að sölu bankans á eignarhlut sínum í kortafyrirtækinu Borgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×