Viðskipti innlent

Stefna forsvarsmönnum Kaupþings

Samúel Karl Ólason skrifar
Ólafur Ólafsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson.
Ólafur Ólafsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson. VÍSIR/ÞORBJÖRN ÞÓRÐARSON
Samtök sparifjáreigenda hafa stefnt forsvarsmönnum Kaupþings vegna markaðsmisnotkunar. Samtökin segja þá hafa valdið hluthöfum bankans fjártjóni með blekkingum. Bolli Héðinsson, formaður stjórnar samtakanna stefnir mönnunum fyrir hönd þeirra.

Þess er krafist að forsvarsmenn Kaupþings greiði samtökunum 902.493.733 krónur ásamt vöxtum.

Stefnan hefur verið birt Hreiðari Má Sigurðssyni, forstjóra Kaupþings samstæðunnar, Ingólfi Helgasyni, forstjóra Kaupþings á Íslandi, Magnúsi Guðmundssyni, forstjóra dótturfélags Kaupþings í Lúxemborg, Ólafi Ólafssyni, eins stærsta eiganda Kaupþings, og Sigurði Einarssyni, stjórnarformanni Kaupþings.

Í tilkynningu frá samtökunum segir að um prófmál sé að ræða þar sem skorið verði úr því hvort almennir hluthafa sem áttu hlutabréfi í Kaupþingi geti sótt skaðabætur á hendur forsvarsmannanna.

„Í dómi héraðsdóms Reykjavíkur taldist þannig sannað að Kaupþing hafi stundað markaðsmisnotkun að undirlagi Hreiðars Más, Ingólfs og Sigurðar, með kaupum á eigin bréfum til að halda verði bréfa í bankanum uppi. Þótti sannað að viðskiptin hafi verið umfangsmikil og verið „stórfelld markaðsmisnotkun.“,“ segir í tilkynningunni.

Umrædd stefna byggir á því að forsvarsmenn Kaupþings séu skaðabótaskyldir vegna markaðsmisnotkunarinnar sem þeir hafa verið dæmdir fyrir. Þeir hafi vanrækt trúnaðar- og eftirlitsskyldu sína með saknæmum og ólögmætum hætti.

Enn fremur segir að um ríkan og einbeittan ásetning hafi verið að ræða sem hafi blekkt þá sem áttu hlutafé í Kaupþingi.


Tengdar fréttir

Hreiðar Már, Magnús og Sigurður sýknaðir

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag þá Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg og Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings, af ákæru í CLN-málinu svokallaða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×