Viðskipti innlent

Starfsmenn safna undirskriftum til stuðnings bankastjóra

Sæunn Gísladóttir skrifar
Steinþór Pálsson er bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson er bankastjóri Landsbankans.
Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum hefur hópur starfsmanna Landsbankans hafið undirskriftasöfnun til stuðnings Steinþóri Pálssyni, bankastjóra Landsbankans. Kjarninn greindi fyrst frá þessu.

Vísir greindi frá því á dögunum að fimm einstaklingar úr bankaráði Landsbankans ætli ekki að gefa kost á sér til endurkjörs. Þeir segja engar aðrar hvatir en hagsmuni bankans hafa legið að baki varðandi sölu Borgunar. Bankaráðsmennirnir sögðust vonast til þess að Steinþór Pálsson stjórni bankanum áfram. Steinþór lýsti því yfir í kjölfarið að hann myndi halda áfram störfum hjá bankanum. 

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, sagði á síðasta mánudag að uppsögn Steinþórs hefði ekki verið til skoðunar.


Tengdar fréttir

Landsbankinn ekki seldur á næstu mánuðum

"Ég er mjög sáttur við að Bankasýslan bregðist við erindi mínu með þessum hætti. Þeir hafa tekið undir það að þetta mál hefur valdið bankanum vissu tjóni,‟ segir Bjarni Benediktsson,






Fleiri fréttir

Sjá meira


×