Viðskipti erlent

Stærsta bókabúð Bretlands hættir að selja Kindle

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sala á Kindle í Waterstones hefur farið dvínandi síðustu misseri.
Sala á Kindle í Waterstones hefur farið dvínandi síðustu misseri. vísir/getty
Waterstones, stærsta bókabúð Bretlands sem eflaust margir Íslendingar kannast við, ætlar að hætta að selja lestölvuna Kindle vegna dvínandi sölu síðustu misseri. Ætlar verslunin að nýta sölurýmin sem losna undir prentaðar bækur.

Árið 2012 hóf Waterstones samstarf við Amazon um sölu á Kindle í verslunum sínum. Sala á Kindle hefur farið minnkandi og ekki virðist sem hún muni aukast heldur þvert á móti. Sala á bókum hefur hins vegar aukist stöðugt í verslunum Waterstones síðan í desember í fyrra en það er ekki einsdæmi.

Samkvæmt tölum frá Nielsen Bookscan hefur sala á bókum aukist um 4,6 prósent í Bretlandi á fyrstu 36 vikum ársins, borið saman við sama tímabil í fyrra.

Er þetta í fyrsta sinn sem aukning verður í sölu á prentuðum bókum á milli ára frá því 2007, að því er segir í frétt Guardian.


Tengdar fréttir

Bókmenntir flottasta útflutningsgreinin

Bækur Arnaldar Indriðasonar eru gefnar út á tugum tungumála. Hann segir íslenska höfunda upplifa blómaskeið í landvinningum erlendis. Forseti Íslands heiðraði Arnald á föstudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×