Menning

Söngurinn númer eitt, tvö og þrjú

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sigríður Thorlacius, Ásta Björg Björgvinsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Tómas R. Einarsson, Kristófer Rodríguez Svönuson, Guðný Anna Árnadóttir og Anna Dúna Halldórsdóttir. Þær Ásta Björg, Guðný Anna og Anna Dúna eru úr tólf manna sönghópnum Við Tjörnina.
Sigríður Thorlacius, Ásta Björg Björgvinsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Tómas R. Einarsson, Kristófer Rodríguez Svönuson, Guðný Anna Árnadóttir og Anna Dúna Halldórsdóttir. Þær Ásta Björg, Guðný Anna og Anna Dúna eru úr tólf manna sönghópnum Við Tjörnina. Fréttablaðið/Stefán
Lögin Stolin stef, Hjarta mitt og Þú ert eftir Tómas R. Einarsson eru meðal laga sem hljóma á útgáfutónleikum í Norðurljósasal Hörpu á sunnudagskvöldið klukkan 20.

Þeir eru haldnir til að fagna Mannabörnum, nýútkomnum diski með músík Tómasar R.  í útsetningum Gunnars Gunnarssonar píanóleikara og organista.

Tónleikarnir eru á dagskrá Jazzhátíðar Reykjavíkur. Flytjendur eru söngkonan Sigríður Thorlacius, Sönghópurinn Við Tjörnina, sem er tólf manna blandaður kór, Tómas, Gunnar og kóngaleikarinn Kristófer Rodríguez Svönuson.



Best að heyra í höfuðpaurnum Tómasi.

„Þetta eru átján sönglög, frá síðustu þrjátíu árum, sem ég hef samið við ljóð eftir ýmis góðskáld frá 20. öldinni.

Svo á ég nokkra texta. Ég var kannski búinn að semja lag og þegar sú hugmynd kom upp að syngja það vantaði texta og þá neyddist ég til að berja hann saman sjálfur,“ segir Tómas glaðlega.

„En ég kalla hitt fólkið skáld en sjálfan mig textasmið, geri sterkan greinarmun þar á milli.“

Tónleikarnir eru liður í Jazzhátíð Reykjavíkur.

„Þetta er ekki alvenjulegasta djassmúsíkin getum við sagt, því þarna er höfuðáhersla á sönginn en allt eru þetta lög sem hafa komið út á djassplötum mínum og eru upphaflega djasslög þó söngurinn sé núna númer eitt og tvö og þrjú,“ lýsir Tómas og segir það forvitnilegt og skemmtilegt að heyra lögin í þessari útgáfu, þar sem allt snúist um laglínuna en fá djasssóló.

„Lögin eru samt ekki í einföldum búningi því útsetningar Gunnars Gunnarssonar eru bæði fjölbreyttar og mjög flottar.

Það hefur ekki verið gert mikið að því að útsetja djasslög fyrir blandaðan kór, ég vil ekki segja að þetta sé í fyrsta skipti en það fer nálægt því, að minnsta kosti í heilu verkefni af þessu tagi.“

Í Sönghópnum Við Tjörnina er ungt fólk sem Gunnar hefur unnið með í Fríkirkjunni og flest er það í tónlistarnámi, að sögn Tómasar.

„Þetta eru ungar og ferskar raddir, fólk sem er með annan fótinn í atvinnumennsku í tónlist.“

Sigríður Thorlacius er þekktust meðal jafningja í söngnum.

„Mér datt í hug að gaman væri að fá einsöngvara til að syngja á móti kórnum hér og hvar, til að auka fjölbreytnina“ segir Tómas.

„Svo þegar við vorum búin að fá Sigríði til liðs við okkur var hún svo hrikalega góð að við freistuðumst til að fá hana í flest lögin.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×