Menning

Söngur og gleði í Hamraborg

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Brynja Harðardóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
Brynja Harðardóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Mynd/úr einkasafni
„Við ætlum að prófa í fyrsta skipti að bjóða almenningi að syngja með sveitinni. Okkur finnst það tengjast þema Akureyrarvökunnar svo vel, al-menning fyrir almenning,“ segir Brynja Harðardóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands um tónleika sveitarinnar í Hofi annað kvöld.

„Við vonumst til að fá fjölbreyttan hóp af fólki til að vera með og upplifa stemninguna í húsinu. Svo verða Óskar Pétursson sem allir Norðlendingar þekkja og elska, og Ragnheiður Gröndal sem kemur lengra að, Hjalti og Lára, hjón sem hafa komið fram víða og náð miklum vinsældum. Listamennirnir troða upp einir líka. Óskar Péturs syngur til dæmis Hamraborgina.“

En hvernig lög verða í hópsöngnum?

„Klassísk íslensk lög eins og Í fjarlægð, Vikivaki, Síldarvalsinn, Með þér og fleiri slík. Við verðum með textana á tjaldi og hlökkum hrikalega til að fylgjast með hvernig gengur að fá fólk til að taka undir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×