Menning

Snart hjarta

Magnús Guðmundsson skrifar
Eitt af verkum Rakelar á sýningunni Snart hjarta.
Eitt af verkum Rakelar á sýningunni Snart hjarta.
Rakel Steinarsdóttir sýnir í grafíksal Hafnarhússins um þessar mundir sýninguna Snart hjarta. Sýningin var opnuð fyrir liðlega viku og vakti umtalsverða athygli en stendur þó aðeins fram yfir helgina.

Rakel byggir gjarnan verk sín á innsetningum í rými þar sem umfjöllunarefnin eru ýmiss konar hversdagslegir hlutir sem eru hluti af ferli eða hringrás sem er skráð og sett í annað samhengi. Hér vinnur hún tímatengt verk þar sem efniviðurinn er rekaviður.

Rakel segir að hugmyndir verkanna komi víða að og þau geta skírskotað til margra hluta. „Oft vinn ég þannig að náttúran eða umhverfið skapar hluta af verkinu og ég útfæri það svo, stundum á undan og stundum á eftir.

Þegar ég tíndi rekann var kreppan mikið í umræðunni og fannst mér því áhugavert að nýta mér auðlind sem var fleygt á land eftir dyntum veðurs og stöðu tungls. Í gegnum aldirnar hefur rekinn auðvitað verið nýttur til margra hluta eins og til húsbygginga og sem girðingarefni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×