Innlent

Slökkviliðið forðaði milljarða tjóni

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
„Það fyrsta sem upp kemur hjá okkur er að ekki urðu slys á fólki eða enn þá verri uppákoma, að einhver hefði látið lífið. Það hefði svo sannanlega getað gerst miðað við þær aðstæður sem sköpuðust hjá drengjunum í upphafi eldhafsins.“
„Það fyrsta sem upp kemur hjá okkur er að ekki urðu slys á fólki eða enn þá verri uppákoma, að einhver hefði látið lífið. Það hefði svo sannanlega getað gerst miðað við þær aðstæður sem sköpuðust hjá drengjunum í upphafi eldhafsins.“ vísir/Magnús Hlynur
„Eldurinn skemmdi vörur frá Set fyrir milljónir, en ef við skoðum málið með jákvæða auganu getum við sagt að slökkviliðið kom í veg fyrir stórtjón. Samanlagt brunabótamat húsanna umhverfis eldstaðinn er 515 milljónir, ofan á þessa tölu þarf að bæta öllum verðmætum sem í þessum húsum eru og atvinnumissi fólks ef brennur. Slökkviliðið kom því í veg fyrir tjón sem hefði reiknast yfir milljarð króna,“ segir Kristján Einarsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu vegna Sets brunans á sunnudagskvöld.

Kristján segir að menn hafi lagst yfir brunann og ýmsar vangaveltur komið upp í kjölfarið

„Það fyrsta sem upp kemur hjá okkur er að ekki urðu slys á fólki eða enn þá verri uppákoma, að einhver hefði látið lífið. Það hefði svo sannanlega getað gerst miðað við þær aðstæður sem sköpuðust hjá drengjunum í upphafi eldhafsins. Það fór ekki að ganga almennilega að ráða niðurlögum eldsins fyrr en slökkviliðsmenn fóru að nota froðu,“ segir Kristján. Þá er sérstökum legi blandað saman við vatn með sérstökum tækjum.

Kristján Einarsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu.mynd/mhh
„Fyrst þurfti að ná í alla þá froðu sem við áttum til. Við erum með mikið á bílunum og síðan áttum við byrgðir á slökkvistöðinni. Það þýðir ekki að hefja froðuaðgerðir í svona öflugum bruna fyrr en töluvert magn er komið á staðinn. Smáskammtaaðferð gengur ekki. Við notuðum nánast allt sem við eigum, nokkur hundruð lítra, kostnaður BÁ bara vegna froðunnar er yfir milljón krónur. Ef við höldum áfram að meta kostnað þá skemmdust töluvert af slöngum, það er algengt í svona vinnu. Margt annað kemur upp og síðan leggst launakostnaður ofan á þetta allt. Hér eru um að ræða hundruð króna“, bætir Kristján við.

Vélsmiðja Suðurlands var í mikilli hættu

 Þróun eldsins var hröð enda mikið magn af auðbrennanlegu plasti var í portinu hjá Set. Hitinn í svona bruna er allt frá 1800-2000°, eldstungurnar ná tugi metra upp í loftið og í þeim logum sem hæst fara er óhætt að áætla að hitinn sé 6-700°

„Ef slökkviliðið hefði ekki náð að hemja eldinn eins fljótt og raun bar vitni er nánast öruggt að kviknað hefði í Vélsmiðju Suðurlands og þeim fyrirtækjum sem í því húsi eru. Veggir þess húss voru við það að bresta undan gríðarlegum geislavarma en slíkur varmi getur kveikt elda í tuga metra fjarlægð frá rótum eldsins. Ef aðeins meiri vindur hefði verið þá er öruggt að það hús hefði brunnið“, segir Kristján og bætir því við að fleiri hús voru í hættu, því geislavarmi var farinn að hafa áhrif á einbýlishúsin sunnan við eldhafið. 

Eins var hús trésmiðjunnar Laska í hættu vegna geislunar. Einnig er víst að stór eldur í Vélsmiðjuhúsinu hefði haft keðjuverkandi áhrif á nærliggjandi hús, bifreiðaverkstæði og síðan yfir í BES-húsið svonefnda. Slökkviliðið ræður við ýmis verkefni, en ef mörg stór iðnaðarhús fara að brenna getur reynst erfitt að fást við verkefnið“, segir Kristján að lokum.


Tengdar fréttir

Leita ungmenna sem sáust á svæðinu áður en eldurinn kviknaði

Lögreglan á Suðurlandi leitar nú ungmenna eða jafnvel barna, sem ábendingar hafa borist um að hafi sést á lagersvæði plaströraverksmiðjunnar Sets á Selfossi rétt áður en mikill eldur gaus þar upp um kvöldmatarleitið í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×