Innlent

Silvía Nótt verður með í forkeppninni

Silvía Nótt.
Silvía Nótt.
Lagið "Til hamingju Ísland" í flutningi Silvíu Nætur fær að taka þátt í forkeppni söngvakeppninnar þrátt fyrir að lagið hafi birst á netinu.

Þetta kemur fram í fréttayfirlýsingu sem Ríkisútvarpið sendi frá sér í kvöld.

Höfundar lagsins lýsa harmi sínum yfir að lagið hafi lekið út og segja það hafa gerst án síns vilja eða vitundar.

Segjast þeir vilja gera allt sem í sínu valdi stendur til að keppnin geti farið fram á grundvelli jafnréttis og heiðarleika og þeir muni gæta sín betur við áframhaldandi æfingar og upptökur.


Tengdar fréttir

Silvía lak

Myndband við evróvisjónlag Silvíu Nætur er komið út, - óformlega. Til stóð að frumsýna myndbandið í kvöld en, líkt og með lag Silvíu, lak myndbandið á netið fyrr en til stóð og gengur nú manna á millum.

Fundur Útvarpsráðs varðandi lag Silvíu Nóttar í dag

Afdrif lagsins, Til hamingju Ísland, í flutningi Silvíu Nóttar, í undankeppni Eurovision keppninnar, ráðast væntanlega á fundi Útvarpsráðs í dag. Kristján Hreinsson, sem samdi texta við þrjú önnur lög í keppninni, kærði að umrætt lag skyldi fá að taka þátt í undankeppninni, eftir að það lak út á netið. Um nýliðna helgi komst lagið svo áfram í úrslit undankepninnar sem fram fer næstkomandi laugardag.

Bara í plati eða alvöru?

En heldur finnst mér illa komið fyrir þeim íslensku karlmönnum sem finnst sögupersóna í leikriti eftirsóknarverðari en raunveruleg kona.

Harma að lagið hafi farið á netið

Höfundar lagsins ,,Til hamingju Ísland" sem flytja á í undankeppni Eurovision hér á landi harma að lagið hafi komist í dreifingu á netinu. Þetta segir í yfirlýsingu sem höfundar lagsins sendu frá sér en Silvía Nótt á að flytja lagið. Í yfirlýsingunni segir að þetta hafi verið algjörlega gegn vilja höfunda og gerst án þeirrar vitundar.

Kom, sá og sigraði

Silvía Nótt nótt kom, sá og sigraði í undankeppni Eurovision gærkvöldi með laginu Til hamingju Ísland en annar lagahöfundur í keppninni, Kristján Hreinsson lagði í gær fram stjórnsýslukæru til að fá lagið dæmt úr keppni.

Silvía Nótt ekki með í Evróvisjón?

Eins og staðan er núna fær Silvía Nótt ekki að flytja lag Þorvaldar Bjarna "Til hamingju Ísland" í forkeppni Evróvision á laugardag eins og til stóð en lagið lak út á netið í gær. Ómögulegt hefur verið að ná í keppnishaldara í morgun enda hafa þeir verið á stífum fundi þar sem reynt er að taka ákvörðum um hvort gefa eigi laginu undanþágu frá reglum keppninnar. Forsvarsmenn Basecamp, sem fer með framkvæmd keppninnar, sögðu í samtali við fréttastofu að reglurnar væru mjög skýrar og samkvæmt þeim ætti að vísa laginu úr keppni.

Silvía Nótt sigraði forkeppnina

Til hamingju Ísland í flutningi Silvíu Nætur verður framlag Íslendinga í söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin verður í Aþenu í maí. Það kom fáum á óvart að lagið vann yfirburðarsigur í forkeppni söngvakeppninnar sem haldin var í gær. Lagið hlaut meira en sjötíu þúsund atkvæði af þeim rúmlega hundraðþúsund atkvæðum sem bárust.

Ísland síðast á svið

Eins og greint var frá í gær stígur Silvía Nótt síðust á svið í undankeppni Eurovision sem fram 18.maí í Grikklandi. Verði hún meðal tíu efstu kemst sjónvarpsdívan áfram í aðalkeppnina laugardaginn 20.maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×