Innlent

Sigmundur Davíð kominn undir 100 kíló

Boði Logason skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segist ekki hafa verið léttari síðan hann var 12 ára gamall, en hann er nú 99,6 kíló.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segist ekki hafa verið léttari síðan hann var 12 ára gamall, en hann er nú 99,6 kíló. mynd úr safni
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er kominn undir 100 kíló og er nú 99,6 kíló. Á Facebook-síðu sinni segist hann hættur að vera póstnúmer.

Sigmundur Davíð byrjaði í megrun í lok ágúst en hann var þá 108 kíló. Síðan þá hefur hann eingöngu borðað íslenskan mat en hann hefur gefið megrúnarkúr sínum nafnið „Íslenski kúrinn." Hann hefur þó gert einhverjar undanþágur, til að mynda þegar hann fór í vinnuferð til Finnlands fyrir nokkrum vikum síðan. Hann fékk matareitrun í ferðinni.

Á Facebook-síðu sinni í morgun segir Sigmundur Davíð vinum sínum frá því að hann sé hættur að vera póstnúmer, og vísar þá eflaust í það að tölurnar 108, 105 og 101 eru algeng póstnúmer á ýmsum svæðum á höfuðborgarsvæðinu.

„Kominn undir 100 kíló í fyrsta skipti frá því ég var 12 ára ...nei það er líklega ekki alveg það langt síðan en alla vega lengra en ég man og í millitíðinni hafa verið ófáar tilraunir sem skiluðu ekki sama árangri og íslenski kúrinn," segir hann á Facebook.

Einhverjir vinir Sigmundar grínast með það að úr því að hann er hættur að vera póstnúmer og sé orðinn að útvarpsstöð. Sigmundur svarar í athugasemdarkerfi á síðu sinni. „He he, ætli sé þá ekki rétt að stefna á að vera orðinn Bylgjan í næstu viku," segir hann og vísar til þess að útvarpstíðni Bylgjunnar er 98,9.


Tengdar fréttir

Sigmundur Davíð ekki hættur í megrun - 5,6 kíló farin

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, er ekki hættur í megrun, ef marka má Facebook-síðu hans nú fyrir nokkrum mínútum. Þar segist hann hafa setið fastur í þinginu þar til klukkan eitt í nótt og gleymt að færa inn nýjustu tölur.

Sigmundur Davíð fékk matareitrun í Finnlandi

"Fundaferðin með utanríkismálanefnd gekk vel þar til ég fékk matareitrun,“ skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á Facebook síðu sinni í morgun. Sigmundur Davíð er í Finnlandi en fram kom áður en hann fór út að hann myndi hætta að borða íslenskan mat, sem hann hefur einungis neytt undanfarnar vikur, og prófa finnskan mat.

Sigmundur Davíð missti sjö kíló á einum mánuði

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður og formaður Framsóknarflokksins, er nú 101,1 kíló en hann hefur misst samtals 6,9 kíló frá því hann byrjaði í megrun fyrir um mánuði síðan.

Sigmundur Davíð grennist hratt - sex kíló farin

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og þingmaður, hefur misst tvö kíló frá því hann byrjaði í megrun fyrir um viku síðan. Þegar átakið hófst var hann 108 kíló en er nú 106 kíló.

Sigmundur Davíð hættur í megrun?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sem gaf það út fyrir þremur vikum síðan að hann væri farinn í megrun, birti ekki tölur um þyngd sína í gær - líkt og hann sagðist ætla að gera alla mánudaga. Menn velta því nú fyrir sér hvort að hann sé hættur í átakinu.

Sigmundur Davíð er 108 kíló og ætlar í megrun

„Jæja, þá er komið að því. Á morgun byrja ég fyrir alvöru í megrunarkúr sem ég hlýt að kalla íslenska kúrinn því hann felst í því að borða bara íslenskan mat," skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á heimasíðu sína.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×