Menning

Shingo Fuji í Þjóðmenningarhúsinu í kvöld

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Fujii leikur verk eftir Sor, Tárrega, Granados, Brouwer og Takemitsu á tónleikunum í kvöld.
Fujii leikur verk eftir Sor, Tárrega, Granados, Brouwer og Takemitsu á tónleikunum í kvöld.
Á gítartónleikum Japanans Shingo Fujii í Þjóðmenningarhúsinu í kvöld sem hefjast klukkan 20, leikur hann verk eftir Sor, Tárrega, Granados, Brouwer og Takemitsu.

Fujii er gestur Listaháskóla Íslands í þessari viku og eru þrír viðburðir haldnir í tengslum við heimsókn hans sem allir eru opnir almenningi.

Fyrir utan tónleikana í Þjóðmenningarhúsinu er það fyrirlestur á morgun, 27. ágúst klukkan 16.15 í  Sölvhóli, tónleikasal LHÍ, Sölvhólsgötu 13 sem nefnist Japönsk samtímaverk fyrir gítar.

Þar varpar Fujii ljósi á það hvernig japönsk samtímatónskáld hafa skrifað fyrir klassíska gítarinn, en hljóðfærið hefur átt sérlega miklum vinsældum að fagna þar í landi í áratugi.

Sérstök áhersla verður lögð á verk meistarans Toru Takemitsu (1930-1996), eins helsta tónskálds Japana á 20. öld, en jafnframt mun  Fujii kynna eigin verk fyrir gítar.

Master Class námskeið verður svo í Sölvhóli klukkan 19 á morgun. Þar koma nemendur LHÍ fram og fleiri.

Shingo Fujii er einn af leiðandi gítarleikurum og gítartónskáldum Japans í dag.  Hann lærði á gítar frá tíu ára aldri en hóf síðar nám undir handleiðslu Ichiro Okamoto.



Að loknu burtfararprófi frá háskólanum í Kyoto fluttist hann til Spánar þar sem hann stundaði nám hjá José Luis González, José Tomás og David Russell.

Fujii hlaut 1. verðlaun í Young Guitarist Competition í Osaka árið 1978 og Diploma frá Royal College of Music í London (A.R.C.M.)

Þá voru honum veitt Luis Coleman verðlaunin í Santiago de Compostela á Spáni árið 1986.

Fujii vakti mikla athygli sem tónskáld þegar gítarkonsert hans, Concierto de Los Angeles, var frumfluttur í Kyoto árið 2006 af bandaríska gítarleikaranum William Kanengizer.  

Í kjölfarið var Fujii boðið að stjórna frumflutningi á verkinu í Bandaríkjunum en síðan hefur William Kanengizer leikið verkið með hljómsveitum á fjölda tónleika í Bandaríkjunum, í Beijing og Shanghai í Kína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×