Viðskipti innlent

Sérstakur gefur ekki skýrslu um hleranir

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jón Óttar og Ólafur Þór þurfa ekki að gefa skýrslur vegna hlerana embættis sérstaks saksóknara.
Jón Óttar og Ólafur Þór þurfa ekki að gefa skýrslur vegna hlerana embættis sérstaks saksóknara. Vísir/Pjetur/Daníel
Hæstiréttur sneri í dag við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, og fimm aðrir starfsmenn embættisins gæfu skýrslu vegna hlerana í tengslum við Al Thani-málið.

Á meðal þeirra sem gefa áttu skýrslu var Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi starfsmaður sérstaks saksóknara, sem mjög hefur gagnrýnt starfsaðferðir embættisins.

Hörður Felix Harðarson, verjandi Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrum forstjóra Kaupþings, fór fram á sexmenningarnir gæfu skýrslu varðandi það sem hann taldi ólöglegar hleranir á símtölum Hreiðars við verjanda sinn.

Í dómi Hæstaréttar kemur fram að upptökurnar af símtölum Hreiðars við Hörð myndu ekki koma til neinna álita varðandi dóm Hæstaréttar í Al Thani-málinu en Hreiðar var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir aðild sína að því. Dómnum var áfrýjað og vildi verjandi Hreiðars kalla vitnin til áður en Hæstiréttur myndi kveða upp dóm sinn.

Þá staðfesti Hæstiréttur dóm héraðsdóms um að ekki væri þörf á að kalla tvo rannsakendur til viðbótar til að gefa skýrslu, varðandi breytta réttarstöðu sem Halldór Bjarkar Lúðvíksson, fyrrverandi starfsmaður Kaupþings í Lúxemborg, fékk á meðan á rannsókn Al Thani-málsins stóð.

Þá staðfesti Hæstiréttur úrskurð héraðsdóms þess efnis að verjandi Ólafs Ólafssonar fái heldur ekki að kalla til nýtt vitni í málinu, en Ólafur hlaut þriggja og hálfs árs fangelsi í héraði fyrir Al Thani-málið. Hann áfrýjaði þeim dómi til Hæstaréttar.


Tengdar fréttir

Allir sakborningar áfrýja niðurstöðu í Al-Thani máli

Allir sakborningar í Al-Thani málinu ætla að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Málsvarnarlaun sem Hreiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings var dæmdur til að greiða verjanda sínum við í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Al-Thani málinu eru hæstu málsvarnarlaun sem dæmd hafa verið í sakamáli hér á landi.

Dómur í Al-Thani máli í dag - allt sem þú þarft að vita

Dómur verður kveðinn upp í Al-Thani málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag kl. 15. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings og aðrir sakborningar í málinu gætu átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi.

Al-Thani málið: Þungir fangelsisdómar yfir Kaupþingsmönnum

Dómur var kveðinn upp í Al-Thani málinu nú rétt í þessu. Sakborningar fengu eftirtalda dóma: Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, fimm ár og hálft ár. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, fimm ár. Ólafur Ólafsson, fjárfestir, 3 og hálft ár. Magnús Guðmundsson, forstjóri Kaupþings í Lúxemborg 3 ár.

Sérstakur og Jón Óttar gefa skýrslu vegna hlerana

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að kalla skuli sérstakan saksóknara, Ólaf Þór Hauksson, og fimm aðra starfsmenn embættisins til skýrslutöku vegna hlerana í tengslum við Al-Thani málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×