Viðskipti innlent

Séð og Heyrt og Nýtt líf koma út á ný

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Björn Ingi Hrafnsson er nýr stjórnarformaður Birtíngs.
Björn Ingi Hrafnsson er nýr stjórnarformaður Birtíngs. Vísir/Ernir
Tímaritin Séð og Heyrt og Nýtt líf munu á næstunni koma út á ný en þau hafa verið í útgáfuhléi frá áramótum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá útgáfufélaginu Pressunni en það tók í dag formlega við eignarhaldi á útgáfufélaginu Birtíngi.

Í tilkynningunni segir að á hluthafafund hafi ný stjórn félagsins verið kjörin en í henn sitja Björn Ingi Hrafnsson  stjórnarformaður, Matthías Björnsson og Sigurvin Ólafsson. Karl Steinar Óskarsson verður áfram framkvæmdastjóri Birtíngs.

 

„Á fundi með starfsmönnum Birtíngs kynntu forsvarsmenn Pressunnar sýn sína á möguleika tímarita Birtíngs og var samdóma álit fundarmanna að miklir möguleikar felist í sókn með nýrri tækni á netinu og á samskiptamiðlum, auk hefðbundinnar útgáfu tímaritanna.

 

Fram kom í máli Björns Inga Hrafnssonar, nýs útgefanda Birtíngs, að gert er ráð fyrir að Séð og heyrt og Nýtt líf hefji fljótlega göngu sína að nýju, en bæði tímaritin hafa verið í útgáfuhléi frá áramótum. Á næstunni verði kynntar margvíslegar aðgerðir til að sækja fram í útgáfu á vegum samstæðunnar, en Pressan og einstök dótturfélög hennar gefa nú út tæplega þrjátíu fjölmiðla hér á landi.

 

Pressan er nú eigandi alls hlutafjár í Birtíngi, en fyrrverandi hluthafar í félaginu, þeir Hreinn Loftsson, Matthías Björnsson og Karl Steinar Óskarsson, bætast í hluthafahóp Pressunnar. Framkvæmdastjóri Pressunnar er Arnar Ægisson,“ segir í tilkynningu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×