Innlent

Sá sem var fyrst útilokaður fékk eitt atkvæði - Ægir Geirdal fékk sex

Valur Grettisson skrifar
Ægir Geirdal fékk sex atkvæði.
Ægir Geirdal fékk sex atkvæði.

Það var Rúnar Þór Jónsson sem var fyrstur til þess að verða útilokaður frá sæti á stjórnlagaþinginu samkvæmt kosningakerfinu sem var notað. Hann hlaut eitt atkvæði og var því útilokaður í lotu 3.

Næstur á eftir honum var Ægir Geirdal Gíslason, fyrrverandi öryggisvörður. Pressan birti viðtal við systur sem sökuðu hann um að hafa misnotað sig þegar þær voru börn fyrir kosningarnar.

Í viðtali á Vísi sagði hann þær á eftir peningum. Svo virðist sem Ægir hafi ekki notið vítæks stuðnings til stjórnlagaþings en hann hlaut 6 atkvæði.

Fyrstu tíu sem duttu út fengu samtals 96 atkvæði. Flest atkvæði fengu Daði Már Jónsson og Úlfur Einarsson eða 13 atkvæði hvor. Daði tapaði fyrir Úlfi þegar hlutkesti var varpað. Úlfur tapaði svo næst.

Íris Lind Sæmundsdóttir, lögfræðingur, var næst inn samkvæmt kosningakerfinu. Hún rannsakaði meðal annars stjórnarskráabreytingar í meistararitgerð sinni. Þess má geta að hún er búsett í Vesturbæ Reykjavíkur eða póstnúmeri 107, þar sem næstflestir kjörnir stjórnlagaþingmenn búa.

Hér er listi yfir þá tíu sem voru fyrst útilokaðir. Svo fylgir á eftir listi yfir þá 25 frambjóðendur sem voru næstir inn.

Fyrstir til þess að verða útilokaðir:

Rúnar Þór Jónsson lota 3. 1 atkvæði

Ægir Geirdal Gíslason lota 4. 6 atkvæði

Ólafur Torfi Yngvason lota 5. 7 atkvæði

Elinborg Skúladóttir lota 6. 10 atkvæði

Guðni Karl Harðarson lota 7. 11 atkvæði

Jóhannes Jónsson lota 8. 11 atkvæði

Ásgeir Baldursson, tapar í hlutkesti í lotu 9. 12 atkvæði

Bergsveinn Guðmundur Guðmundsson tapar í hlutkesti í lotu 10. 12 atkvæði

Daði Már Jónsson tapar í hlutkesti í 11 lotu. 13 atkvæði

Úlfur Einarsson tapar í hlutkesti í tólftu lotu. 13 atkvæði

Hér er svo listi yfir þá 25 sem hefðu verið næstir inn:

Íris Lind Sæmundsdóttir

Stefán Gíslason

Þorgeir Tryggvason

Jón Ólafsson

Magnús Thoroddsen

Birna Þórðardóttir

Gunnar Hersveinn Sigursteinsson

Guðrún Högnadóttir

Þorsteinn Arnalds

Árni Indriðason

Jónas Kristjánsson

Kristín Vala Ragnarsdóttir

Sigurður Guðmundur Tómasson

Tryggvi Gíslason

Ingibjörg Snorradóttir Hagalín

María Ágústsdóttir

Elías Blöndal Guðjónsson

Anna Kristín Kristjánsdóttir

Reynir Grétarsson

Árni Björnsson

Ólína Freysteinsdóttir

Valgarður Guðjónsson

Birna Guðrún Konráðsdóttir

Stefán Pálsson

Guðrún Helgadóttir


Tengdar fréttir

Sakaður um barnaníð: „Þær eru á höttunum eftir peningum"

Ægir Geirdal, frambjóðandi til stjórnlagaþings, segir ekkert hæft í ásökunum tveggja kvenna um að hann hafi misnotað þær þegar stúlkurnar voru á unglingsaldri. Hann segir málið snúast um peninga og ætlar í mál við netmiðil sem birti fyrstu fréttir af málinu.

Þorvaldur Gylfason: Vill endalok sjálftökusamfélagsins

„Mér finnst brýnast að stjórnlagaþingið marki endalok sjálftökusamfélagsins,“ sagði Þorvaldur Gylfason sem telur flesta þá sem voru kjörnir inn á þingið líti svo á að endurskoðun stjórnarskráarinnar sé nátengt bankahruninu sem varð haustið 2008.

Þorvaldur Gylfason er sigurvegari kosninganna

Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor fékk langflest atkvæði í fyrsta sæti. Hann fékk alls 7192 atkvæði í fyrsta sæti. Næstur á eftir honum kemur Salvör Nordal með 2482 atkvæði.

Þessir voru kjörnir á stjórnlagaþing

Niðurstöður stjórnlagaþingskosninganna voru kynntar í Laugardalshöll nú síðdegis. Það var Ástráður Haraldsson sem kynnti niðurstöðurnar. Listinn sem við birtum hér er ekki í samræmi við magn atkvæða sem fólk hlaut heldur er um stafrófsröð að ræða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×