Menning

Ragnheiður Eyjólfsdóttir hlýtur Barnabókaverðlaunin

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ragnheiður Eyjólfsdóttir
Ragnheiður Eyjólfsdóttir mynd/forlagið
Ragnheiður Eyjólfsdóttir, arkitekt og rithöfundur, hlaut í morgun Íslensku barnabókaverðlaunin 2015 fyrir skáldsögu sína Skuggasaga – Arftakinn.

Bókin er hennar fyrsta verk en í tilkynningu segir að Ragnheiður sæki innblástur í norrænar sögur og evrópskar sagnir og ævintýri.

Arftakinn fjallar um Sögu sem sér hluti sem enginn annar sér. Hún er þó fyrir löngu búin að læra að þegja yfir þeim. Eftir að  húshjálpin í kjallaranum hverfur sporlaust og í  hennar stað birtist skuggalegur óvættur fær Saga loks  skýringu á því hvers vegna hún er öðruvísi en aðrir.  En það er skýring sem erfitt er að horfast í augu við  og um leið upphafið að ótrúlegu ævintýri.

Bókin Skuggasaga - Arftakinn.mynd/forlagið
Að mati dómnefndar er Arftakinn „metnaðarfull og spennandi saga sem jafnast á við bestu furðusögur sem skrifaðar hafa verið á íslensku.“ Ragnheiður er komin vel á veg með næstu bók um ævintýri Sögu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×