Erlent

Ráðgjafi Trump ræddi við Tyrki um að koma Gulen til Tyrklands

Samúel Karl Ólason skrifar
Michael Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Trump.
Michael Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Trump. Vísir/AFP
Michael Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Donald Trump, ræddi við tengdason Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, um að mögulegar leiðir til að koma klerkinum Fathulla Gulen frá Bandaríkjunum til Tyrklands. Þessu heldur James Woolsey, fyrrverandi yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna, fram, en Flynn sjálfur neitar þessu.

Samkvæmt Woolsey, sem ræddi við Wall Street Journalvar ekki rætt um að framselja Gulen til Tyrklands. Gulen hefur verið sakaður af ríkisstjórn Erdogan um að skipuleggja valdaránstilraun í Tyrklandi. Hluti hersins reyndi að ná Erdogan frá völdum síðasta sumar, en það gekk ekki eftir.

Gulen, sem hefur haldið til í Bandaríkjunum frá 1999, þvertekur fyrir að hafa komið að valdaránstilrauninni. Yfirvöld í Tyrklandi hafa margsinnis farið fram á að hann verði afhentur þeim.

Woolsey kom að framboði Trump, eins og Flynn, en segist hafa mætt of seint á fundinn, sem átti sér stað í New York í september. Þar voru meðal annars Flynn, tengdasonur Erdogan og Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands.

Hann segir þá hafa velt fyrir sér leiðum til að koma Gulen til Tyrklands og að það slíkar aðgerðir myndu brjóta gegn lögum Bandaríkjanna. Hann segir þó að umræðan hafi ekki farið lengra en áðurnefndar vangaveltur.


Tengdar fréttir

Erdogan herðir tökin í Tyrklandi

Yfirvöld í Tyrklandi halda áfram að þrengja að tjáningarfrelsinu í landinu og reka ríkisstarfsmenn sem sakaðir eru um tengls við stjórnarandstöðu klerkinn Fethullah Gulen. Fimmtán fréttastofum var lokað þar í morgun og ritstjóri stjórnarandstöðublaðsins Cumhuriet var hnepptur í varðhald.

Gülen stjórnar hreyfingu sinni úr útlegð

Erdogan Tyrklandsforseti og klerkurinn Fetúla Gülen voru í eina tíð bandamenn. Nú eru aðrir tímar og Erdogan segir Gülen hafa staðið á bak við valdaránstilraun hersins í Tyrklandi. Gülen segir ekkert hæft í því. Herferð Erdogans gegn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×