Lífið

Óli og Alexander í viðtali við Reuters: Fáir fylgjast með handbolta á Íslandi

Alexander Petersson á fljúgandi siglingu í leiknum gegn Pólverjum.
Alexander Petersson á fljúgandi siglingu í leiknum gegn Pólverjum. MYND/Vilhelm

Erlendir miðlar hafa margir hverjir hrifist af frammistöðu íslenska landsliðsins á Ólympíuleikunum í Peking. Þannig fer Reuters fréttastofan lofsamlegum orðum um leik íslenska liðsins gegn Pólverjum og segir Ísland vera það lið sem komið hefur hvað mest á óvart í keppninni.

Reuters ræðir við tvö liðsmenn landsliðsins, þá Alexander Petersson og Ólaf Stefánsson, og eru þeir að vonum jákvæðir eftir að hafa lagt að velli þjóð sem er rúmlega 130 sinnum fjölmennari en Ísland.

„Núna verður handboltasprengja á Íslandi,“ segir Alexander en talað er um að ekki sé mikill áhugi fyrir íþróttinni heima á klakanum og að flestir leikmennirnir spili erlendis.

„Við fáum um fimm hundruð manns á hvern leik,“ á Ólafur að hafa sagt við blaðamann Reuters í síðustu viku. „Það er vel skiljanlegt. Stundum er vont veður og þig langar ekkert að keyra í tuttugu mínútur í snjónum þegar þú getur horft á sjónvarpið í staðinn.“

Umfjöllun Reuters


Tengdar fréttir

Pólverjar grétu - Myndir

Tilfinningarnar voru miklar að loknum leik Íslands og Póllands í morgun. Á meðan að íslensku leikmennirnir og íslenska þjóðin öll fögnuðu í gleðivímu voru pólsku leikmennirnir heldur langt niðri.

Arnór Atla: Fáranleg trú í þessu liði

„Þetta verður ekkert mikið stærra en þetta. Maður er tiltölulega hátt uppi núna og leyfir sér að fagna þessu aðeins,“ sagði brosmildur Arnór Atlason sem var ánægður með karakterinn í íslenska liðinu.

Myndir úr leik Íslands og Póllands

Ísland vann í morgun frægan sigur á Pólverjum, 32-30, í fjórðungsúrslitum í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Peking.

Ísland spilar um verðlaun á Ólympíuleikunum

Ísland vann glæsilegan sigur á Pólverjum í fjórðungsúrslitum handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Peking, 32-30. Ísland spilar þar með um verðlaun á leikunum.

Alexander: Ég trúi þessu varla

„Þvílíkur leikur og við höfðum trú á okkur allan tímann. Það lögðust allir á eitt því við viljum svo innilega láta drauminn rætast sem er að vinna medalíu. Við sýndum hverslags lið við erum í þessum leik. Við erum með rosalega gott lið,“ sagði járnmaðurinn Alexander Petersson og brosti allan hringinn.

Sjónvarpsviðtal Óla: Líður eins og Morfeus

Ólafur Stefánsson landsliðsfyrirliði fór í sjónvarpsviðtal á Rúv skömmu eftir leik þar sem hann leyfði landsmönnum að kynnast mögnuðu hugsunarflæði sínu.

Guðjón Valur: Erum ekki hættir

„Venjulega segir maður bara tvö stig og ekkert annað en þessi sigur þýðir að við erum á leið í undanúrslit á Ólympíuleikum og það er einfaldlega frábær tilfinning,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson að vonum glaður eftir sigurinn á Pólverjum.

Sigfús: Medalían er á leiðinni

„Mér líður rosalega vel og er ekkert smá stoltur af strákunum. Diddi [Ingimundur] og Sverre voru að vinna eins og brjálaðir menn í dag. Drápu allt sem kom inn á miðjuna og Bjöggi alveg brjálaður á bakvið. Það voru allir flottir í dag,“ sagði skógarbjörninn Sigfús Sigurðsson kampakátur eftir sigurinn á Pólverjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×