Tíska og hönnun

Nú getur þú keypt brúðarkjól Amal Clooney

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Nú geta tilvonandi brúðir keypt sér eins kjól og Amal Clooney klæddist þegar hún gekk að eiga leikarann George Clooney fyrir stuttu.

Kjóll Amal var sérsaumaður af fatahönnuðinum heitna, Oscar de la Renta, en tískurisinn afhjúpaði nýjan brúðarkjól í síðustu viku sem er í brúðarkjólalínu næsta árs. Kjóllinn er innblásinn af kjólnum hennar Amal.

Ekki er ljóst hvenær kjóllinn fer í sölu og óljóst er einnig hvað hann kostar en líklegt er að verðið verði svimandi hátt.


Tengdar fréttir

Gifta sig í Feneyjum

Styttist í stóra daginn hjá George Clooney og Amal Alamuddin.

Amal er ekki ólétt

Sögusagnir um barneignir George Clooney og unnustu hans ekki sannar.

Sæt á stefnumóti

Stórleikarinn George Clooney og Amal Alamuddin njóta lífsins á Ítalíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×