Tíska og hönnun

Munnskolið mikil­vægt í förðunarstarfinu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Kolbrún Anna Vignisdóttir er viðmælandi vikunnar í Hvað er í töskunni?
Kolbrún Anna Vignisdóttir er viðmælandi vikunnar í Hvað er í töskunni? Grafík/Vísir

Förðunarfræðingurinn og ofurskvísan Kolbrún Anna Vignisdóttir er vanalega alltaf með förðunarnauðsynjavörur í töskunni sinni og klikkar sömuleiðis ekki á því að vera bæði með munnskol og tyggjó. Hún er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Það leynist ýmislegt í tösku Kolbrúnar Önnu eins og hún deilir hér fyrir neðan.

Það leynist alls konar spennandi í töskunni hjá Kolbrúnu Önnu. Grafík/Vísir

Hvað er í töskunni þinni og segðu okkur aðeins frá því sem er?

Tæki: Airpods, hleðslubanki og auðvitað síminn.

Ég vil aldrei verða batteríslaus og vinn mikið í símanum og er því alltaf með risa hleðslubanka á mér.

Ég á gamla filmuvél sem ég sting iðulega í töskuna en þó aðallega á sumrin þegar ég fer í ferðalög eða er að gera eitthvað skemmtilegt sem er gaman að fanga á filmu.

Airpods, filmuvél og hleðslubanki. Aðsend

Dagbók og plastvasi fyrir kvittanir. Ég er að taka skipulagið mitt í gegn og þessir hlutir eru að hjálpa til við að halda öllu í röð og reglu.

Kolla er í skipulagsátaki og þetta nýtist henni vel við það. Aðsend

Ég er mikið á ferðinni og oft að hoppa á milli staða og þá finnst mér gott að hafa alltaf handspritt, tannstöngla, míní munnskol og tyggjó. Ég vinn líka ofan í andlitinu á fólki svo þetta eru allt lykilvörur að hafa í veskinu hjá sminkum.

Lykilvörur þegar þú vinnur ofan í andlitinu á fólki. Aðsend

Ég er alltaf með sólgleraugu meðferðis og þessi frá Chimi hafa verið í töskunni síðan ég keypti þau í fyrra.

Chimi sólgleraugun. Aðsend

Það er eitt hólf í töskunni sem er svona „touch up“ hólf. Þar er ég með púður til að matta ef ég verð glansandi, nokkra varaliti, varablýant og varaolíu.

Förðunarnauðsynjar Kollu. Aðsend

Hefur einhver hlutur tilfinningalegt gildi?

Ekki beint en mér finnst mjög gott að hafa dagbók sem ég skrifa alls konar sem kemur upp í hugann hverju sinni. Hvort sem það er eitthvað tengt vinnu, hugmyndum eða sjálfsvinnu.

Er eitthvað sem er alltaf í töskunni þinni?

Ég er alltaf með airpodsin mín á mér. Ég fékk fyrstu airpodsin mín í afmælisgjöf í fyrra og skil núna hype-ið! Er oftar en ekki með hlaðvarp í eyrunum.

Hver er þín uppáhalds taska og afhverju?

Taskan mín frá bosk. Hún Berglind sem hannar og saumar töskurnar er algjör snillingur og notar endurunnið garn. Ég pantaði græntóna tösku hjá henni því ég elska grænan !

Uppáhalds taska Kollu. Aðsend

Ertu dugleg að taka til í töskunni þinni og halda röð og reglu? 

Já og nei, ég tek þetta í syrpum. Ég var til dæmis að kaupa mér nýja tösku og færa allt yfir í hana og þá tók ég allt í gegn. Það var alveg kominn tími til.

Kolla tekur töskutiltektina í syrpum. Aðsend

Ertu gjarnan með margar töskur á þér eða margar til skiptanna?

Ég myndi ekki segja að ég væri með mikið töskublæti, er oftast bara með sömu tösku hversdags. Ég á síðan nokkrar til skiptanna sem ég nota við fínni tilefni.

Kolla segist ekki með mikið töskublæti. Aðsend

Stór eða lítil taska og afhverju?

Stór taska dagsdaglega en minni þegar ég fer eitthvað fínt. Dagsdaglega er ég alltaf með stóra svo allt komist fyrir. Þá er ég gjarnan með aðra minni tösku með hólfum ofan í stóru. Ég elska að hafa tösku með hólfum, þá er ég fljótari að finna allt.


Tengdar fréttir

Forfallin húðumhirðuaðdáandi og sólarvarnarlögga

Listakonan og Andrá skvísan Hulda Katarína Sveinsdóttir er alltaf með skissubók í töskunni sinni ef innblásturinn skyldi koma yfir hana. Hún fær hugmyndir á öllum tímum dagsins og er því vel búin með ýmsa skemmtilega hluti í töskunni sinni.

Týnir öllu þannig að flest staldrar stutt við í töskunni

Leikkonan og áhrifavaldurinn Kristín Pétursdóttir segist ekki dugleg að halda röð og reglu í töskunni sinni og á það til að týna hlutum, þar með talið töskum. Hún er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni? og opnar töskuna sína fyrir lesendum Vísis.

Louis Vuitton taskan sem bæði týndist og fannst í uppáhaldi

Það er nóg um að vera hjá Manúelu Ósk framkvæmdarstjóra Ungfrú Ísland en hún er dugleg að ferðast vegna starfs síns og er því nauðsynlegt að eiga góða tösku. Manúela Ósk er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni? hér á Vísi.  

Er skipulagsfrík og tekur reglulega til í töskunni

Kírópraktorinn og smekkmaðurinn Guðmundur Birgir Pálmason, jafnan þekktur sem Gummi Kíró, leggur mikið upp úr því að halda góðu skipulagi á töskunum sínum. Hann er viðmælandi í liðnum Hvað er í töskunni þinni? 

Alltaf með nasl í töskunni og þjáist af matarást á háu stigi

Markaðsstjórinn og ofurskvísan Pattra Sriyanonge lifir viðburðaríku lífi og er því mikilvægt fyrir hana að vera alltaf með réttu hlutina í töskunni. Lífið á Vísi tók púlsinn á henni í nýjum föstum lið sem heitir Hvað er í töskunni þinni?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×