Viðskipti innlent

Mundi ekki eftir verðmati á Aurum í yfirheyrslu hjá lögreglu: „Ég var mjög stressaður“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Úr dómssal í gær.
Úr dómssal í gær. Vísir/GVA
Daði Hannesson, sérfræðingur sem starfaði í fyrirtækjaráðgjöf Glitnis árið 2008 og vann verðmat á bresku skartgripakeðjunni Aurum Holdings Limited, kom fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í gær og bar vitni í sakamáli sem kennt er við keðjuna. 

Í gögnum sem borin voru undir vitnið kom fram að hann hefði metið virði Aurum á um 190 til 200 milljónir punda en verðmatið vann hann í tengslum við lánið sem ákært er fyrir í málinu. Við yfirheyrslu lögreglu kvaðst Daði hins vegar ekkert kannast við að hafa unnið verðmat á fyrirtækinu en fyrir dómi í gær sagði hann framburð sinn hjá lögreglu ekki réttan.

Þeir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Magnús Arnar Arngrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, eru ákærðir fyrir umboðssvik vegna sex milljarða króna lánveitingar Glitnis til félagsins FS38 ehf. Lánið notaði félagið til að kaupa 25,7 prósent hlut Fons í Aurum en bæði félögin voru í eigu Pálma Haraldssonar.  

Fé Glitnis stefnt í hættu

Auk Lárusar og Magnúsar eru þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, sem var einn stærsti eigandi Glitnis, og Bjarni Jóhannesson, viðskiptastjóri hjá bankanum, ákærðir fyrir hlutdeild í meintum umboðssvikum.

Ákæruvaldið telur að með láninu hafi fé Glitnis verið stefnt í hættu þar sem hlutaféð í Aurum hafi ekki verið nægileg trygging fyrir láni bankans til FS38.

Vörn sakborninga byggir á því að hlutaféð hafi einmitt verið næg trygging fyrir láninu enda sýni þrjú samtímaverðmöt, þar með talið verðmatið sem fyrirtækjaráðgjöf Glitnis vann, að hlutabréfin hafi verið fjögurra milljarða króna virði. Það sem upp á vantaði varðandi lánið fór í sjálfskudarábyrgð hjá Fons, en markmið bankans með viðskiptunum hafi verið að bæta tryggingastöðu sína gagnvart því félagi.

Fram kom fyrir dómi í gær að verðmatið hafi byggt á fimm ára áætlun Aurum varðandi rekstur fyrirtækisins og var notast við svokallað sjóðsstreymismælingu. Saksóknari spurði Daða hvort að það falist í því að áætlun Aurum hefði verið tekin og sjóðsstreymi núvirt svaraði hann játandi en benti á að ef hann  myndi rétt þá hefði áætlunin verið dregin aðeins niður til að sjá aðra sviðsmynd.

Jafnframt kom fram að Daði hefði ekki lagt sjálfstætt mat á þær áætlanir sem matið byggði á. Hann kvaðst hins vegar ekki hafa gert ráð fyrir öðru en að gögnin væru byggð á réttum forsendum og væru góð og gild.

Sérstakur saksóknari ræðir við einn verjenda í dómssal.Vísir/GVA
Í tölvunni hjá Glitni

Óttar Pálsson verjandi Lárusar Welding spurði Daða hvort hann hefði vitað af því að önnur deild innan Glitnis hefði lagt mat á áætlanir Aurum og talið þær hófstilltar og raunhæfar. Svaraði hann neitandi.

Ólafur Þór Hauksson saksóknari í málinu bar undir Daða skýrslu sem hann gaf hjá lögreglu vegna Aurum. Kvaðst Ólafur vera að velta fyrir sér merkingu verðmatsins.

Í lögregluskýrslunni er meðal annars haft eftir Daða að ekki hafi verið gert neitt verðmat hjá fyrirtækjaráðgjöf vegna Aurum. Spurður út í þetta fyrir dómi sagði Daði:

„Það var þannig að þetta var vistað á öðrum stað, þetta var ekki vistað hjá fyrirtækjaráðgjöf.“

„Þannig að þetta gagn var ekki inni hjá Glitni?“ spurði saksóknari.

„Þetta var í tölvunni minni hjá Glitni,“ svaraði Daði.

Þrúgandi yfirheyrslur

Spurður nánar út í orð sín hjá lögreglu þar sem hann sagðist meðal annars aldrei hafa séð verðmat á Aurum sagði Daði.

„Ég veit ekki af hverju ég segi þetta. Þetta er bara ekki rétt. Ég hef ekki beinar skýringar á þessu. Þetta hefur bara ekki komið upp í hugann eða ég ekki munað eftir þessu. Ég gerði mörg verðmöt og ég hef kannski bara ekki tengt þetta við Aurum.“

Óttar Pálsson spurði svo Daða hvort það hefðu verið þrúgandi aðstæður við yfirheyrsluna. Svaraði hann því játandi. Áður hafði komið fram að hann hefði mjög stressaður við yfirheyrsluna. Óttar spurði hvort að það hefði getað haft áhrif á framburð hans hjá lögreglu.

„Ég gæti alveg trúað því að það kunni að hafa haft áhrif en ég get ekki fullyrt um það. Ég man bara að ég var mjög stressaður og ég held að ég hafi hreinlega ekki vita af hverju ég var í yfirheyrslu,“ sagði Daði.  


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×