Enski boltinn

Meta-Moyes kveður Old Trafford

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Stjóratíð Davids Moyes hefur verið skelfileg
Stjóratíð Davids Moyes hefur verið skelfileg Fréttablaðið/Getty
Manchester United tilkynnti snemma í gær það sem virtist vera orðið nokkuð augljóst á mánudaginn: David Moyes hefur verið rekinn sem knattspyrnustjóri félagsins eftir tæpt ár í starfi en hann tók formlega við 1. júní á síðasta ári.

Stjóratíð hans hefur verið hörmung nánast frá fyrsta degi til þess síðasta en liðið endar tímabilið án titils og fyrir utan Meistaradeildarsæti í fyrsta sinn í 24 ár. Það var kannski við hæfi að hann skildi missa starfið eftir tap gegn Everton, liðinu sem hann kom aftur til vegs og virðingar.

Enginn stjóri hjá Manchester United hefur enst í styttri tíma en David Moyes en hann var aðeins 10 mánuði í starfi. Fara þarf aftur til leiktíðarinnar 1931-32 til að finna styttri dvöl en þá stýrði Walter Crickmer United í 43 leikjum, sex leikjum færri en Moyes.

Vandræði Moyes hófust strax síðasta sumar þegar ekkert gekk á félagaskiptamarkaðnum. Sama hvað United reyndi þá vildi engin stjarna koma til félagsins.

Nánast frá fyrsta leik til hins síðasta hafa stuðningsmenn Manchester United meira og minna verið efins um hæfni Moyes en það virtist spila verr og verr með hverjum leiknum. Skotinn virtist alveg ráðalaus.

Moyes er búinn að slá hvert metið sem enginn stjóri United vill eiga á fætur öðru. Lið sem höfðu ekki unnið á Old Trafford í áratugi mættu og unnu tiltölulega auðvelda sigra og þá gat United-liðið varla fengið stig spilaði það á móti liði fyrir ofan sig í töflunni.

Talað var um að Moyes ætti að fá tíma til að byggja upp og því líkt við þegar Sir Alex Ferguson tók við félaginu árið 1986. En þetta er ekki samanburðarhæft. Ferguson tók við liði sem hafði spilað undir getu í mörg ár og glímdi við allskonar vandamál. David Moyes tók við ríkjandi Englandsmeisturum.

Í nútímanum, þegar peningar skipta jafnmiklu máli og raun ber vitni í fótboltanum, verður engin 26 ára þolinmæði sama þó félag haldi það hafi fundið nýjan Messías.

Félag á hlutabréfamarkaði sem treystir á Meistaradeild, keppni sem það verður ekki í á næsta ári, getur ekki beðið eftir að vont verði skárra.


Tengdar fréttir

Gerði útslagið að komast ekki í Meistaradeildina

Manchester United gat ekkert annað gert en rekið David Moyes þegar litið er á viðskiptahlið félagsins segir fyrrverandi framkvæmdastjóri Liverpool en það verður ekki í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Brottrekstur Moyes staðfestur

Manchester United hefur staðfest að félagið hafi sagt knattspyrnustjóranum David Moyes upp störfum.

Borðinn gæti endað á safni

"Sá útvaldi“ stendur á frægum borða sem hefur prýtt stúku Old Trafford, leikvang Manchester United.

Ancelotti vorkennir Moyes

Carlo Ancelotti segir að það hafi komið sér á óvart að Manchester United hafi ákveðið að reka David Moyes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×