Enski boltinn

Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðslu­þak verði sett á

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Forráðamenn Manchester City vilja ekki að eyðsluþak verði sett á lið ensku úrvalsdeildarinnar.
Forráðamenn Manchester City vilja ekki að eyðsluþak verði sett á lið ensku úrvalsdeildarinnar. EPA-EFE/PETER POWELL

Sextán af 20 liðum ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu hafa samþykkt tillögu þess efnis að sett verði eyðsluþak á lið deildarinnar. Manchester City og United ásamt Aston Villa voru á móti tillögunni á meðan Chelsea sat hjá.

Samkvæmt The Athletic verður eyðsluþakið sett á fyrir tímabilið 2025-26. Tillagan hljómar þannig að félög deildarinnar munu „aðeins“ geta eytt fimmfalt því sem tekjulægsta félag deildarinnar fær fyrir sjónvarpsrétt sinn.

Hugmyndin var rætt á eigendafundi liða deildarinnar í dag, mánudag. Verður svo kosið um tillöguna á almennum fundi deildarinnar sem fram fer í júní.

Fari tillagan í gegn þá mun hún koma í stað þeirrar reglu sem nú er við lýði. Samkvæmt þeirri reglu mega lið aðeins eyða ákveðinni prósentu af tekjum sínum ár hvert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×