Viðskipti erlent

Malm-kommóður innkallaðar í Kína

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Malm-kommóða í Ikea-verslun í Kína.
Malm-kommóða í Ikea-verslun í Kína. vísir/getty
Sænski húsgagnaframleiðandinn Ikea hefur ákveðið að innkalla Malm-kommóður í Kína eftir þrýsting frá yfirvöldum þar. Um 1,7 milljónir kommóða sem voru framleiddar á árunum 1999 til 2016 verða innkallaðar í Kína þar sem kommóðurnar eru ekki taldar uppfylla öryggiskröfur.

Áður hefur Ikea innkallað Malm-kommóður í Norður-Ameríku vegna dauðsfalla og alvarlegra slysa sem urðu þar aðallega á börnum vegna kommóðanna þar sem þær höfðu oltið.

Ríkisfjölmiðillinn í Kína gagnrýndi Ikea á dögunum fyrir að sýna kæruleysi þar sem innköllunin á vörunni hefði ekki náð til fleiri landa.

„Möguleg hætta af því að húsgögn velti er mikið vandamál í allri húsgagnaframleiðslu. Ikea lofar að vera gott fordæmi þegar kemur að því að takast á við þessa áskorun,“ sagði Ikea á heimasíðu sinni.

Rétt er að geta þess að innköllun á Malm-kommóðum nær ekki til Íslands eða annarra landa en Kína, Bandaríkjanna og Kanada. Kommóðan er ein mest selda kommóða í heimi og hefur til að mynda notið mikilla vinsælda hér á landi.

„Malm-kommóðan er, eins og flestar kommóður Ikea, hugsuð til þess að standa upp við vegg en ekki frístandandi úti á miðju gólfi. Við höfum því verið að hvetja fólk til þess að festa þær með þar til gerðum festingum við vegg, eins og ýmis önnur húsgögn sem Ikea framleiðir og selur, enda setur fyrirtækið öryggi á heimilinu á oddinn,“ sagði Þórarinn Ævarsson framkvæmdastjóri Ikea á Íslandi í viðtali við Vísi þegar kommóðurnar voru innkallaðar í Bandaríkjunum.


Tengdar fréttir

Ikea innkallar Malm-kommóður í Norður-Ameríku

Ikea hefur ákveðið að innkalla 29 milljónir Malm-kommóða í Bandaríkjunum og Kanada í kjölfar þess að þrjú börn létust í Bandaríkjunum þar sem Malm-kommóða valt og lenti á barninu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×