Menning

Lokatónleikar Engla og manna

Tenórinn Gunnar Guðbjörnsson lýkur tónlistarhátíðinni Englar og menn með tónleikum á laugardag.
Tenórinn Gunnar Guðbjörnsson lýkur tónlistarhátíðinni Englar og menn með tónleikum á laugardag. Visir/Valli
Lokatónleikar Tónlistarhátíðarinnar Englar og menn í Strandarkirkju í Selvogi fara fram á morgun og hefjast klukkan 14. Þar koma fram þau Gunnar Guðbjörnsson tenór og Helga Bryndís Magnúsdóttir orgelleikari undir yfirskriftinni „Heyr mig, lát mig lífið finna“.



Hluti dagskrár þeirra verður tileinkaður 150 ára fæðingarafmæli Einars Benediktssonar skálds, sem bjó síðustu æviár sín í Herdísarvík í Selvogi. Á dagskránni eru einnig Kirkjulög Jóns Leifs ásamt tónlist eftir Bach og suðurevrópsk tónskáld.



Tónlistarhátíðin Englar og menn hefur staðið yfir á laugardögum í júlímánuði. Markmið hátíðarinnar er að bjóða upp á lifandi og vandaða tónlistarviðburði á hinum sögufræga stað og auðga um leið tónlistarlíf á Suðurlandi. Þema hátíðarinnar er englar og menn, land, trú og saga þar sem íslenska sönglagið ásamt trúarljóðum og klassískum verkum hljómar á um klukkustundarlöngum tónleikum. Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona er listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri hátíðarinnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×