Körfubolti

Logi handleggsbrotinn og tímabilið í hættu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Logi í leik með Njarðvík.
Logi í leik með Njarðvík. Vísir
Logi Gunnarsson, bakvörður Njarðvíkur, handleggsbrotnaði í leik liðsins gegn Þór Þorlákshöfn í gær. Atvikið átti sér stað í fyrsta leikhluta en Logi kláraði engu að síður leikinn.

„Þetta gerðist snemma í leiknum. Ég var að keyra inn að körfunni og það var einhver sem lamdi á höndina. Þetta var bara alger óheppni,“ sagði Logi sem sagði að hann hefði vitað strax að hann væri brotinn. Hann er í gipsi í dag.

„Ég sá að beinið stóð út af. Við teipuðum þetta í hálfleik og ég reyndi bara að drippla með vinstri og spila vörn það sem eftir var af leiknum.“

Sjá einnig: Fullt hús hjá Einari Árna á móti Njarðvík

Leikurinn gegn Þór var æsispennandi og réðst ekki fyrr en á lokasekúndunum. Njarðvík fékk tækifæri til að jafna leikinn í síðustu sókninni en Logi, einn besti skotmaður landsins, tók eðlilega ekki skotið.

„Þetta gekk ágætlega þrátt fyrir allt. Við vorum að spila gegn sterku liði og auðvitað hefði maður viljað taka skot í lokin enda mikilvægar sóknir. En það var bara ekki hægt.“

„Ég reyndi bara að gera mitt besta í vörninni og stöðva útlendinginn [Vance Hall] þeirra. Það gekk á köflum ágætlega. Ég reyndi bara að aðstoða eins og ég gat.“

Hann segir óvíst hvort hann spili aftur á leiktíðinni eða þá hvenær.

„Ég hef verið mjög hepppinn með meiðsli í gegnum tíðina og þekki bara ekki hvernig svona lagað gengur fyrir sig - hvort ég megi spila strax þegar ég losna við gipsið. Ég hitti vonandi sérfræðing í dag.“

Sjá einnig: Gunnar: Bonneau búinn að vera ótrúlega duglegur

Njarðvíkurliðið hefur mátt þola ýmis skakkaföll í vetur en það hófst þegar Stefan Bonneau meiddist á undirbúningstímabilinu. Þá missti Haukur Helgi Pálsson af leiknum í gær vegna meiðsla.

„Stundum er þetta bara svona. Það kemur eitt á eftir öðru. Við vonum samt að Haukur komi til baka. Við höfum verið vængbrotnir en samt náðum við næstum því að vinna sterkt lið Þórs í gær. Það þýðir ekkert annað að verja bjartsýnir, þrátt fyrir að tímasetningin á meiðslunum sé hundleiðinleg.“


Tengdar fréttir

Gunnar: Bonneau búinn að vera ótrúlega duglegur

Gunnar Örlygsson, formaður Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, ætlar ekki aðeins að fylgjast vel með þegar Stefan Bonneau spilar sinn fyrsta leik með Njarðvík eftir hásinarslit því formaðurinn ætlar að spila sjálfur með Bonneau í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×