Viðskipti innlent

Leiðréttir goðsagnir um hrunið

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Ný bók, Billions to Bust and Back, fjallar um Björgólf Thor Björgólfsson, líf hans og viðskiptasögu.
Ný bók, Billions to Bust and Back, fjallar um Björgólf Thor Björgólfsson, líf hans og viðskiptasögu.
Í nýrri bók Björgólfs Thors Björgólfssonar fjárfestis sem út kemur í dag segist hann fjalla um efnahagshrun Íslands með hálfum huga.

Reiði og leit að sökudólgum, auk harðra viðbragða við eina viðtalinu sem hann fór í eftir hrun, hafi dregið úr honum. Það sé hins vegar vilji til þess að hið rétta komi fram sem ráði umfjölluninni fremur en að hann vilji rétta sinn hlut.

Björgólfur segir að leiðrétta þurfi goðsögnina að orsaka hrunsins sé að leita í íslensku bönkunum og vitnar til orða prófessor Roberts Aliber um að rót þess sé að finna í brotalömum alþjóðafjármálakerfisins.

„Sjálfur trúi ég því að hrunið hafi verið óumflýjanlegt vegna efnahagsstefnu stjórnarinnar og vaxtastefnu Seðlabankans, þótt ég viðurkenni auðvitað að bankarnir deili sökinni með of hröðum vexti,“ segir Björgólfur.

Þá segir hann rangt að fall bankanna hafi haft hlutfallslega meiri neikvæð áhrif á húsnæðiseigendur hér. „Allt bendir til að erlendir lánveitendur bankanna hafi orðið verst úti.“

Skaði húsnæðiseigenda sé að stærstum hluta vegna hruns krónunnar og skuldastöðu landsins.

„Íslensku bankarnir eru blórabögglar fyrir stærri kerfislægar brotalamir heimafyrir og erlendis,“ segir hann.

„Það er aðallega vegna þess að sú skýring hentar öflum bæði á vinstri vængnum, sem fengu þar staðfestingu á sjónarmiðum sínum um kapítalisma og leið inn í ríkisstjórn, og hægri vængnum sem beina vildi athyglinni frá misheppnaðri efnahagsstefnu sinni.“


Tengdar fréttir

Er enginn útrásarvíkingur, segir Björgólfur Thor

Hluta af óvæginni umræðu og ákveðinni hörku sem mætti Björgólfi Thor hér á landi eftir hrun segir hann skýrast af því að hann hafi verið flokkaður með "útrásarvíkingum“ sem fjárfest hafi í erlendum eignum með ódýru fjármagni frá íslensku bönkunum.

Björgólfur Thor gat ekki hjálpað föður sínum

Í nýrri bók sinni gerir Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir upp við fortíðina og viðskiptalegan viðskilnað sem varð á milli hans og Björgólfs Guðmundssonar föður hans. Björgólfur segir föður sinn hafa dreift kröftum sínum um of fyrir hrun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×