Innlent

Krefst afsagnar Svandísar eða afsökunarbeiðni

Magnús M. Norðdahl
Magnús M. Norðdahl

Gjaldkeri Samfylkingarinnar, Magnús M. Norðdahl lögfræðingur, segir Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra eiga tvo valkosti: Afsögn eða tafarlausa afsökunarbeiði til þjóðarinnar. Um varnarræðu Svandisar í fréttum á föstudagskvöld segir þessi stjórnarmaður Samfylkingarinnar:

"Jafn vitlausa og löglausa yfirlýsingu hafa fáir, ef nokkur íslenskur ráðherra látið frá sér fara."

Þetta kemur fram í grein sem Magnús birtir á vefmiðlinum herdubreid.is um helgina eftir að Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, lýsti yfir stuðningi við Svandísi Svavarsdóttur í fréttum Stöðvar 2 á föstudagskvöld. Þar taldi Jóhanna að Svandís þyrfti ekki að segja af sér vegna dóms Hæstaréttar sem komst að þeirri niðurstöðu að umhverfisráðherra hefði ekki farið að lögum þegar staðfestingu aðalskipulags Flóahrepps var synjað. Í viðtalinu á Stöð 2 varði Jóhanna jafnframt stjórnsýslu Svandísar.

Gjaldkeri Samfylkingarinnar er greinilega á öðru máli en formaður Samfylkingarinnar en í grein sinni segir hann Svandísi virðast ætla að feta í fótspor Davíðs Oddssonar í stjórnsýslu sinni. Grein Magnúsar er svohljóðandi:

"Í mörg herrans ár sátum við uppi með ráðherra sem leit svo á, að hann væri ekki embættismaður og handhafi framkvæmdavalds við töku stjórnvaldsákvarðana. Hann væri stjórnmálamaður sem tæki pólitískar ákvarðanir.

Hann var og vildi bara vinna vinnuna sína í forsætisráðuneytinu í friði fyrir fjölmiðlum og að ég tali ekki um dómstóla, sem hann lék sér við að hrauna yfir.

Svandís Svavarsdóttir.

Þannig skipaði hann vini sína og samherja í þau embætti sem hann þurfti að valda, tók upp á eindæmi þátt í innrásinni í Írak í nafni íslensku þjóðarinnar og svo mætti lengi telja. Hann var í pólitík og gerðist síðar ritstjóri Moggans.

Svandís Svavarsdóttir virðist ætla að feta í fótspor hans.

Hún lýsti því yfir í fréttunum í gærkvöldi að hún tæki pólitískar ákvarðanir í ráðuneyti sínu. Þannig beri hún sig að þegar henni ber að úrskurða um réttindi og skyldur borgaranna (og skipulag Flóahrepps). Hjá henni gildi meginreglan um að „ef eitthvað sé ekki sérstaklega leyft í lögum sé það bannað".

Jafn vitlausa og löglausa yfirlýsingu hafa fáir, ef nokkur íslenskur ráðherra látið frá sér fara. Hún er einn af æðstu handhöfum framkvæmdavalds á Íslandi og henni ber í störfum sínum að fara að lögum í öllum ákvörðunum sínum og úrskurðum, en ekki pólitískri sannfæringu. Við höfum fengið nóg af slíku.

Hún á hins vegar greiða atkvæði á Alþingi eftir sannfæringu sinni og pólitík. Fólk sem hugsar og talar eins og hún eiga ekki að skipa ráðherraembætti.

Umhverfisráðherra á tvo valkosti. Afsögn eða tafarlausa afsökunarbeiði til þjóðarinnar, þar sem fram komi einnig að hún skuldbindi sig til þess að kynna sér grundvallarreglur íslenskrar stjórnskipunar og stjórnsýslulög," segir Magnús M. Norðdahl.


Tengdar fréttir

Mikill áfellisdómur yfir stjórnsýslu ráðherra

Hæstiréttur Íslands komst að þeirri niðurstöðu í dag að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefði brotið lög þegar hún neitaði að staðfesta aðalskipulag vegna Urriðafossvirkjunar. Mikill áfellisdómur yfir stjórnsýslu ráðherrans, segir lögmaður Flóahrepps.

Gunnar Smári: Svandís á að segja af sér

„Ráðherra sem misbeitir sínu valdi með þessum hætti á að segja af sér. Ráðherra verður að fara að lögum,“ sagði fréttamaðurinn Gunnar Smári Egilsson, í Silfri Egils þar sem rökrætt var um niðurstöðu Hæstaréttar Íslands sem komst að þeirri niðurstöðu á fimmtudaginn að Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, hefði ekki verið heimilt að synja staðfestingu skipulags Flóahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Synjun umhverfisráðherra ógilt

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem synjun Svandísar Svavars­dóttur umhverfisráðherra á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun er ógilt. Svandís áfrýjaði málinu í október síðastliðnum eftir að hún tapaði í héraði.

Forsætisráðherra: Svandís á ekki að segja af sér

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, stendur með Svandísi Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, og telur að hún þurfi ekki að segja af sér eftir dóm Hæstaréttar í gær. Þá kveður hún afstöðu ríkisstjórnarinnar vera að ekki eigi að virkja í Neðri-Þjórsá.

3,7 milljarðar í undirbúning Þjórsárvirkjana

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra stendur frammi fyrir því að þurfa að staðfesta skipulag þriggja umdeildra virkjana í neðri Þjórsá. Landsvirkjun hefur lagt tæpa fjóra milljarða króna í undirbúning virkjananna en forstjóri fyrirtæksins segist þó ekkert að gera í andstöðu við stjórnvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×