Menning

Kórstarf er óformlegt nám

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ég sýni fram á það í greininni að mismunandi geta kórsöngvara er ekki endilega slæm,“ segir Sigrún Lilja.
"Ég sýni fram á það í greininni að mismunandi geta kórsöngvara er ekki endilega slæm,“ segir Sigrún Lilja. Mynd/úr einkasafni
„Í greininni sýni ég fram á mikilvægi þess að halda ákveðnu jafnvægi innan kóra en að mismunandi geta söngvaranna sé ekki endilega slæm, því það að hafa leiðandi einstaklinga innan hverrar raddar auðveldi öðrum að læra.“

Þetta segir dr. Sigrún Lilja Einarsdóttir, lektor við Háskólann á Bifröst, um ritrýnda grein sem hún birti í hinu virta tímariti British Journal of Music Education sem gefið er út af Cambridge University Press.

Sigrún byggir greinina að hluta til á niðurstöðum doktorsritgerðar sinnar sem hún varði 2012 við háskólann í Exeter í Englandi en sérsvið Sigrúnar er tónlistarfélagsfræði.

„Kórastarf er stór þáttur í menningarlífi staða og markmiðið með greininni er meðal annars að vekja athygli á því óformlega tónlistarnámi sem í því felst að syngja í kór. Það er mikil menntun,“ segir Sigrún.

„Auðvitað eru það engar fréttir fyrir kórafólk en það hefur vantað umfjöllun um það á fræðasviðinu.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×