Viðskipti innlent

Kínverskt fyrirtæki reiðir fram fé til byggingar álvers í Skagabyggð

Bjarki Ármannsson skrifar
Wang Hongqian, forstjóri NFC og Ingvar Skúlason, framkvæmdastjóri Klappa, takast í hendur að undirritun lokinni. Að baki þeim eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Zhang Weidong, sendiherra Kína á Íslandi.
Wang Hongqian, forstjóri NFC og Ingvar Skúlason, framkvæmdastjóri Klappa, takast í hendur að undirritun lokinni. Að baki þeim eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Zhang Weidong, sendiherra Kína á Íslandi. Mynd/Klapp ehf
Klappir Development ehf. og kínverska fyrirtækið NFC undirrituðu í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í gær viljayfirlýsingu um fjármögnun byggingar 120 þúsund tonna álvers á fyrirhuguðu iðnaðarsvæði við Hafursstaði í Skagabyggð. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Zhang Weidong, sendiherra Kína á Íslandi, fluttu ávörp við tilefnið.

Líkt og greint hefur verið frá, er fyrirhugað að álverið verði í meirihlutaeigu íslenskra aðila. NFC ábyrgist hinsvegar samkvæmt yfirlýsingunni að minnsta kosti sjötíu prósent kostnaðar við framkvæmdina, auk þess að ábyrgjast rekstur álversins á meðan uppkeyrslu þess stendur. Orkuþörf álversins yrði 206 megavött en reiknað er með því að orkan komi frá Blönduvirkjun.

Í fréttatilkynningu segir að gert sé ráð fyrir 240 varanlegum störfum í álveri Klappa og allt að 800 tímabundnum störfum á byggingartíma. Hafursstaðir eru skammt sunnan Skagastrandar og bæði Sauðárkrókur og Blönduós verða innan atvinnusvæðis álversins.


Tengdar fréttir

Álver á Hafursstöðum – afleit hugmynd

Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra hafa undirritað samstarfssamning við Klappir Development ehf. um uppbyggingu og rekstur 120.000 tonna álvers á fyrirhuguðu iðnaðarsvæði við Hafursstaði í Skagabyggð. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagafjörður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×