Fótbolti

Ísland vann Svíþjóð og fékk brons á Algarve

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Frábær árangur hjá stelpunum.
Frábær árangur hjá stelpunum. Mynd/KSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson
Ísland kom fram hefndum gegn Svíþjóð frá tapinu á EM síðasta sumar með því að vinna Svía, 2-1, í leiknum um þriðja sætið á Algarve-mótinu í fótbolta í dag. Fékk íslenska liðið því bronsverðlaun á mótinu og er þetta í annað sinn sem liðið fær verðlaun á Algarve.

Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði fyrra mark Íslands á 28. mínútu þegar hún slapp ein í gegnum vörn Svía og kom boltanum í netið, samkvæmt lýsingu á Facebook-síðu KSÍ

Aðeins þremur mínútum síðar barst boltinn aftur inn fyrir vörn Svía þar sem markadrottning Harpa Þorsteinsdóttir var með allt á hreinu og jók forystu Íslands í 2-0. Þannig stóð í hálfleik.

Strax á fyrstu mínútu seinni hálfleiks fékk FanndísFriðriksdóttir dauðafæri sem henni tókst ekki að nýta en Svíar sóttu þó meira í síðari hálfleik.

Íslenska liðið varðist vel í seinni hálfleik en tókst þó ekki að halda hreinu. Þær sænsku minnkuðu muninn, 2-1, með marki Antoniu Göransson á 90. mínútu leiksins.

Okkar stúlkur héldur þó út í uppbótartímanum og lönduðu fræknum og góðum sigri á sterku liði Svíþjóðar sem komst í undanúrslit á EM á heimavelli síðasta sumar með því að vinna Ísland, 4-0.

Freyr Alexandersson var að stýra íslenska liðinu í fyrsta skipti á Algarve-mótinu og vann til verðlauna með liðið á sínu fyrsta móti. Stelpurnar fengu skell gegn Þjóðverjum í fyrsta leik en hristu hann af sér og unnu þrjá leiki í röð; gegn Noregi, Kína og Svíþjóð.

Dóra María Lárusdóttir var fyrirliði íslenska liðsins í dag í sínum 100. landsleik en Þóra B. Helgadóttir spilaði einnig sinn 100. landsleik fyrr á mótinu.


Tengdar fréttir

Héldu "kúlinu“ eftir stóra tapið á móti Þýskalandi

Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur gefið 21 leikmanni tækifæri í byrjunarliðinu á Algarve-mótinu en um leið hefur liðið náð öðrum besta árangri sínum á mótinu frá upphafi. Liðið spilar um bronsið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×