Menning

Hrunbókmenntir krufðar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Markús Þ. Þórhallsson, meistaranemi í sagnfræði, Jón Karl Helgason prófessor og Guðni Th. Jóhannesson dósent.
Markús Þ. Þórhallsson, meistaranemi í sagnfræði, Jón Karl Helgason prófessor og Guðni Th. Jóhannesson dósent. Vísir/Anton Brink
„Við erum að opna upplýsingavef í dag um skrif sem tengjast bankahruninu, aðdraganda þess og afleiðingu og erum með málþing á sjö ára afmæli ávarpsins Guð blessi Ísland,“ segir Jón Karl Helgason, prófessor við Háskóla Íslands.

Vefurinn hrunid.hi.is er verkefni sem Jón Karl og Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur settu í gang í fyrra þegar þeir vorum báðir að kenna námskeið um hrunið hvor í sinni deild.

„Við tókum það ráð að láta nemendur okkar vinna umsagnir um bækur sem tengjast hruninu, annars vegar skáldskap, skáldsögur, leikrit og ljóð og hins vegar um stærri verk sem heyra undir sagnfræði,“ segir Jón Karl og heldur áfram. 

„Stundum er því haldið fram að skáld og fræðimenn hafi verið fremur andvaralausar stéttir í aðdraganda hrunsins en þær hafa báðar tekið vel við sér eins og þessi vefur sýnir skýrt. Hann er gagnabanki um þetta fyrirferðarmikla efni í samtíma okkar, hrunbókmenntir eru bara orðin sérstök bókmenntagrein.“

Auk Jóns Karls og Guðna Th. verða fjórir nemendur HÍ með erindi í málstofunni.  Guðrún Baldvinsdóttir, meistaranemi í almennri bókmenntafræði,  talar um sjálfsmynd þjóðar í íslenskum hrunbókmenntum, Markús Þ. Þórhallsson, meistaranemi í sagnfræði, fjallar um baráttu InDefence-hópsins gegn Icesave-samningunum, Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, doktorsnemi í almennri bókmenntafræði, fjallar um búsáhaldabyltinguna og fleiri andófsgjörninga eftirhrunsins og Þórhildur Ólafsdóttir, doktorsnemi í hagfræði  leitar skýringa á því að heilsa virðist að mörgu leyti batna í efnahagskreppu.

Málstofan fer fram í stofu 301 í Árnagarði og hefst klukkan 16.30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×