Viðskipti innlent

Hólmarar kætast við að hefja skelveiðar að nýju

Kristján Már Unnarsson skrifar
Vonartónn er í Stykkishólmi eftir að veiðar á hörpudiski voru leyfðar á ný í tilraunaskyni eftir langt veiðibann. Hólmarar upplifðu mesta uppgangstíma bæjarins þegar skelveiðarnar stóðu sem hæst fyrir fjörutíu árum. 

Það var mikið áfall fyrir Stykkishólm þegar veiðar á hörpudiski voru bannaðar á Breiðafirði fyrir fjórtán árum enda var þetta aðalskelveiðibær landsins. Í fréttum Stöðvar 2 voru sýndar myndir af löndun úr togskipinu Hannesi Andréssyni SH-737. Aflinn var hörpudiskur, um sjö og hálft tonn eftir daginn.

Hörpudiskur kominn á land í Stykkishólmshöfn.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Þetta er eina skip flotans sem veiða má hörpudisk en þetta eru tilraunaveiðar í samstarfi við Hafrannsóknastofnun. Svanur Jóhannsson skipstjóri segir þokkalegar horfur og að þeir séu bjartsýnir um framhaldið og að hægt verði að byggja upp sjálfbærar veiðar. 

„Já, það held ég að sé alveg klárt. Það er bara spurning um hvað verður hægt að veiða mikið á hverju ári,“ segir Svanur. 

Veiðar á hörpudiski hafa verið bannaðar frá árinu 2003 en tilraunaveiðarnar hófust fyrir tveimur árum. Þeim var fram haldið í haust og er ráðgert að þær standi fram í febrúar. 

Skelinni er náð upp af hafsbotni með sérstökum plógi. Fimm manns eru í áhöfn. Svanur segir þá alla þaulvana skelveiðimenn úr Hólminum og að þeir séu kátir með að endurnýja kynnin við skelina.

Skelveiðiskipið Hannes Andrésson SH 737 við bryggju í Stykkishólmi.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Þeir búast við að veiða sjö til áttahundruð tonn í vetur. Það er aðeins um einn tuttugasti af því sem mest var árið 1985 þegar 17 þúsund tonn veiddust af hörpudiski við landið. 

-Þetta var nú kannski mesti blómatími Stykkishólms? 

„Það má segja það. Það voru ábyggilega einir tíu bátar gerðir út á skel þegar mest var, - og meira á árum áður.“ 

-Það fóru orð á því að þetta voru ríkustu sjómennirnir, þeir sem voru í skelinni? 

„Sumir sögðu það. Þú mátt ekki hafa orð mín fyrir því.“ 

Og vafalaust kætast margir sælkerar því hörpudiskur þykir lostæti. 

„Já, þetta er náttúrlega bara alveg toppvara. Þetta er bara eins og humar.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×